Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Engin íslensk fótspor að feta í

Read Full Article →

Íþróttir | Morgunblaðið | 28.8.2026 | 13:30 Engin íslensk fótspor að feta í Styttan af Magnúsi Guðbjörnssyni brautryðjanda. mbl.is/Eyþór Árnason Kristján Jónsson, [email protected] Setja bókamerki Götuhlaup hafa náð traustri fótfestu í hinni flóknu íslensku þjóðarsál og í seinni tíð nýta fjölmargir slíka líkamsrækt sér til heilsubótar, svo ekki sé minnst á afreksfólkið sem keppir reglulega í hlaupum. Hin geysilega mikla þátttaka í Reykjavíkurmaraþoninu á ári hverju rammar vel inn hversu algengt það er orðið að fólk reimi á sig hlaupaskóna. Þannig hefur það þó ekki alltaf verið. Aldeilis ekki og hvað þá á fyrri hluta 20. aldarinnar þegar lífsbaráttan var enn með harðasta móti hér við nyrsta haf. Einhver þurfti að taka af skarið. Fyrir þá sem unna maraþonhlaupum er vert að minnast þess að í dag 28. ágúst er liðin slétt öld frá því að fyrsta maraþonið var hlaupið á Íslandi svo vitað sé. Þar var á ferðinni Magnús Guðbjörnsson sem var póstur í Laugarneshverfinu í Reykjavík. Magnús fæddist árið 1899 og var því á 27. aldursári þegar hann hljóp maraþon í vitna viðurvist og var raunar greint frá því í fjölmiðlum en daginn eftir sagði Vísir frá hlaupinu. Magnús hljóp af stað uppi af Kambabrún og hljóp vegaslóða til Reykjavíkur. Þessari maraþontilraun lauk hann á Melavellinum sáluga í Vesturbænum. Einn afkomenda Magnúsar, Edwin Roald Rögnvaldsson, er áhugasamur um afrek langafa síns og hefur látið sér detta í hug að setja mætti upp minnisvarða um þetta fyrsta maraþonhlaup á Íslandi. Edwin segir að útskot sé á þjóðveginum og sig langi til þess að fá Vegagerðina og sveitarfélagið Ölfus til að gefa leyfi fyrir því að þar verði einhvers konar upplýsingaskilti um hlaup Magnúsar Guðbjörnssonar. Útskotið sé nærri þeim stað þar sem Magnús hóf hlaupið og þar af leiðandi skammt frá þeim stað þar sem saga maraþons á Íslandi hófst. Stytta gerð af Guðmundi frá Miðdal Edwin kom við á ritstjórn blaðsins í Hádegismóum í vikunni, ekki hlaupandi þó, og var í fanginu með bronsstyttu af Magnúsi. „Ég var eitt sinn að snæða hádegisverð í mötuneytinu í Laugardalnum í húsakynnum ÍSÍ og sérsambanda ÍSÍ. Þar sat ég til borðs með ýmsum úr íþróttahreyfingunni og eitthvað fór ég að grobba mig af langafa. Guðmundur Karlsson framkvæmdastjóri Frjálsíþróttasambandsins stóð upp frá borðinu og brá sér eitthvað frá. Mér þótti undarlegt að hann hefði ekki meiri áhuga á málinu en svo eða þar til hann kom til baka með þessa styttu af langafa. Hún var þá í geymslu hjá FRÍ en vel þótti fara á því að styttan væri þess í stað í vörslu hjá afkomendum Magnúsar,“ rifjar Edwin upp en styttuna gerði ekki ófrægari myndhöggvari en Guðmundur Einarsson frá Miðdal. Guðmundur Karlsson framkvæmdastjóri FRÍ og fyrrverandi Íslandsmethafi í sleggjukasti kemur við sögu í frásögn Edwins. mbl.is/Eggert Jóhannesson Edwin bendir á að þessi tilraun Magnúsar sé áhugaverð á margan hátt. Hér á landi hafi ekki verið fordæmi fyrir slíku og litla þekkingu að sækja. Magnús hafi verið víðavangshlaupari og tekið þátt í keppnum sem í boði voru á þeim tíma, en aldrei fékk hann tækifæri til að keppa erlendis. Magnús hafi þó fengið ágæta aðstoð í fyrsta hlaupinu því Haraldur Sigurðsson hafi hjólað með honum alla leið og aðrir fylgst með úr bifreið. Keppti undir dulnefni Edwin þykir auk þess tími Magnúsar í hlaupinu vera áhugaverður þótt samanburður sé erfiður. Magnús hljóp á 3 klukkustundum og 15 mínútum og hljóp samkvæmt heimildum 40,2 kílómetra en ekki 42 km. Sú hafði vegalengdin verið í maraþoni á Ólympíuleikum snemma á síðustu öld. Magnús hafi væntanlega þurft að horfa niður fyrir sig til að gæta þess hvar hann stigi niður. Ekki einungis þar sem skótauið var annað en þekkist í dag heldur hlýtur vegaslóðinn að hafa verið grýttur. Ekki hafi það flýtt fyrir en á móti komi að talsvert af leiðinni sé niður í móti. Edwin virðir langafa sinn fyrir sér í Hádegismóum. mbl.is/Eyþór Árnason Þegar fjallað er um keppnisreynslu Magnúsar í víðavangshlaupum þá er ekki öll sagan sögð því fyrir liggur að hann keppti í einhverjum tilfellum undir dulnefni: Magnús G. Björnsson, en hét eins og áður kemur fram Magnús Guðbjörnsson. Með því vildi hann halda því leyndu að hann legði stund á hlaup ef um þau skyldi vera fjallað í blöðunum. Ástæðan var sú að faðir Magnúsar hafði ekki nokkurn skilning á þessu óvenjulega áhugamáli og taldi að með hlaupum myndi sonurinn ganga á vinnuþrekið. Greinina í heild sinni er að finna í fimmtudagsblaði Morgunblaðsins. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa miklar áhyggjur af Tiger Woods Einn besti markvörður heims á útsöluverði Landsliðsmaðurinn með skilaboð til þjóðarinnar fyrir kosningar Ráðinn þjálfari Víkings Riftir samningnum við Arsenal Mikill skellur fyrir Mo Salah Sá besti spilaði sinn fyrsta leik með Barcelona HK missteig sig á slæmum tíma Víkingur dregur lið sitt úr keppni – Selfoss í efstu deild Rifa í liðþófa og leikur ekki meir með Breiðabliki í ár Jamie Carragher gjaldþrota? Mikill skellur fyrir Mo Salah Dagný Brynjarsdóttir í nýtt starf Kærastinn enn án félags í Portúgal Evrópudraumnum lokið Áfram bíður Sveindís Jane Liverpool slapp betur en hin ensku liðin Liverpool loksins að kaupa sóknarmann Hættir óvænt rétt fyrir mót Stórleikur á Anfield í bikarnum Hneig niður og lést í miðjum leik Óhugnanlegt atvik í Danmörku Skilin eftir sex ára hjónaband Ferlinum lokið eftir hjartastoppið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Ronaldo bauð ekki mömmu sinni Eiginkona Ronaldo formlega orðin móðir barnanna Mikill skellur fyrir íslenska landsliðið Hafa miklar áhyggjur af Tiger Woods Dagurinn sem Guðmundur gleymir aldrei Fleira áhugavert Fóru snemma úr vinnu fyrir mannskætt slys „Ég minnist hans með mikilli hlýju og þakklæti“ Þung staða á markaðnum Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hafa miklar áhyggjur af Tiger Woods Einn besti markvörður heims á útsöluverði Landsliðsmaðurinn með skilaboð til þjóðarinnar fyrir kosningar Ráðinn þjálfari Víkings Riftir samningnum við Arsenal Mikill skellur fyrir Mo Salah Sá besti spilaði sinn fyrsta leik með Barcelona HK missteig sig á slæmum tíma Víkingur dregur lið sitt úr keppni – Selfoss í efstu deild Rifa í liðþófa og leikur ekki meir með Breiðabliki í ár Jamie Carragher gjaldþrota? Mikill skellur fyrir Mo Salah Dagný Brynjarsdóttir í nýtt starf Kærastinn enn án félags í Portúgal Evrópudraumnum lokið Áfram bíður Sveindís Jane Liverpool slapp betur en hin ensku liðin Liverpool loksins að kaupa sóknarmann Hættir óvænt rétt fyrir mót Stórleikur á Anfield í bikarnum Hneig niður og lést í miðjum leik Óhugnanlegt atvik í Danmörku Skilin eftir sex ára hjónaband Ferlinum lokið eftir hjartastoppið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Ronaldo bauð ekki mömmu sinni Eiginkona Ronaldo formlega orðin móðir barnanna Mikill skellur fyrir íslenska landsliðið Hafa miklar áhyggjur af Tiger Woods Dagurinn sem Guðmundur gleymir aldrei Fleira áhugavert Þung staða á markaðnum Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Titringur á lokametrum baráttunnar Svíar senda hersveitir til Finnlands Loka

Share this article