Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Brynjar Níels­son nýr stjórnar­for­maður Faxa­flóa­hafna

Read Full Article →

Brynjar Níelsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Faxaflóahöfnum. Ný stjórn Faxaflóahafna hefur nú tekið til starfa og hélt sinn fyrsta stjórnarfund í hádeginu í dag, að því er kemur fram í tilkynningu. Fimm af sjö aðalmönnum stjórnar eru nýir. Ragnheiður H. Magnúsdóttir situr áfram sem óháður stjórnarmaður fyrir hönd Reykjavíkurborgar og Páll Brynjarsson sem sameiginlegur óháður fulltrúi Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar. Stjórn Faxaflóahafna er skipuð eftirfarandi einstaklingum: Brynjar Níelsson, formaður (f.h. Reykjavíkurborgar) Regína Ásvaldsdóttir (f.h. Reykjavíkurborgar) Anna Björk Bjarnadóttir, óháður stjórnarmaður (f.h. Reykjavíkurborgar) Ragnheiður H. Magnúsdóttir, óháður stjórnarmaður (f.h. Reykjavíkurborgar) Líf Lárusdóttir (f.h. Akraneskaupstaðar) Haraldur Benediktsson (f.h. Hvalfjarðarsveitar) Páll Brynjarsson (Sameiginlegur óháður fulltrúi Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar) Úr stjórninni hverfa Líf Magneudóttir, fráfarandi formaður, Hildur Björnsdóttir, fráfarandi varaformaður og Már Másson fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Helga Harðardóttir fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar og Guðmundur Ingþór Guðjónsson fyrir hönd Akraneskaupstaðar. Faxaflóahafnir reka umfangsmestu hafnir landsins í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Félagið er í 75,5% eigu Reykjavíkurborgar, 10,8% eigu Akraneskaupstaðar, 9,3% eigu Hvalfjarðarsveitar, 4,1% eigu Borgarbyggðar og 0,2% eigu Skorradalshrepps.

Share this article