Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Brynjar Níelsson nýr formaður stjórnar Faxaflóahafna

Read Full Article →

Ný stjórn Faxaflóahafna hefur nú tekið til starfa og hélt sinn fyrsta stjórnarfund í hádeginu í dag. Stjórnin er skipuð sjö fulltrúum eigenda félagsins sem eru Reykjavíkurborg, Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð. Brynjar Níelsson er nýr formaður stjórnar. Fimm af sjö aðalmönnum stjórnar eru nýir. Ragnheiður H. Magnúsdóttir situr áfram sem óháður stjórnarmaður fyrir hönd Reykjavíkurborgar og Páll Brynjarsson sem sameiginlegur óháður fulltrúi Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar. Úr stjórninni hverfa Líf Magneudóttir, fráfarandi formaður, Hildur Björnsdóttir, fráfarandi varaformaður og Már Másson fyrir hönd Reykjavíkurborgar, Helga Harðardóttir fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar og Guðmundur Ingþór Guðjónsson fyrir hönd Akraneskaupstaðar.

Share this article