Security News

Cybersecurity news aggregator

🏥
INFO News Viðskiptablaðið

Myndir: Öryggis­viðburður Helix

  • What: Cybersecurity event focused on healthcare infrastructure
  • Impact: Healthcare organizations and professionals
Read Full Article →

Helix stóð nýlega fyrir viðburði um öryggi sjúkragagna á Vox Club á Hilton Reykjavik Nordica þar sem netöryggi í heilbrigðisþjónustu var meðal annars rætt. Innlendir og erlendir sérfræðingar ræddu netógnir við heilbrigðisþjónustu og hvernig byggja megi betri viðbúnað. Vallý Helgadóttir forstöðumaður þjónustu og rekstrar hjá Helix. © Aðsend mynd (AÐSEND) Vallý Helgadóttir frá Helix opnaði viðburðinn og benti á að umfang ógnarinnar færi vaxandi. Hún vísaði meðal annars til talna frá Google Threat Intelligence sem sýna að 326 fórnarlömb í heilbrigðis- og lyfjageiranum hafi verið skráð á árinu, að meðaltali um tíu á viku. Samkvæmt sömu gögnum er um að ræða 65% aukningu milli ára. Caitlyn Alexander og Nadia Meer, KPMG í Bretlandi. © Aðsend mynd (AÐSEND) „Öryggi sjúkragagna er ekki eitthvað verkefni sem ein stofnun, eitt fyrirtæki eða ein starfsstétt leysir upp á eigin spýtur. Netöryggi í heilbrigðisþjónustu er ekki lengur bara mál upplýsingatæknideildarinnar. Það er mál sem varðar öryggi sjúklinga, fjárhag, persónuvernd og viðnámsþrótt, og á því fullt erindi á borð æðstu stjórnenda,” sagði Vallý. Guðrún Valdís Jónsdóttir forstöðumaður ráðgjafasviðs Syndis. © Aðsend mynd (AÐSEND) Caitlyn Alexander og Nadia Meer frá KPMG í Bretlandi opnuðu erindaröðina og spurðu hvort íslenska heilbrigðiskerfið væri tilbúið fyrir næstu netárás? Þær fóru meðal annars yfir raunveruleg dæmi um netatvik, lærdóminn sem draga má af þeim og hvaða lykilspurningum stjórnendur heilbrigðisstofnana þurfa að geta svarað til að tryggja öryggi og samfellu í þjónustu. Jóhannes Stefánsson, öryggisstjóri hjá Stafrænni heilsu. © Aðsend mynd (AÐSEND) Guðrún Valdís Jónsdóttir frá Syndis tók næst við og talaði um forvarnir og afleiðingar. Hún fjallaði um hvað hægt væri að gera til að minnka líkurnar á að netöryggisatvik komi upp og hvernig fyrirtæki og stofnanir geta undirbúið viðbrögð sín fyrir fram. Máni Arnarsson var fundarstjóri. © Aðsend mynd (AÐSEND) Hún benti jafnframt á að meðalkostnaður netárása í heilbrigðisþjónustu væri 804 milljónir króna, samkvæmt skýrslu frá IBM en það gerir heilbrigðisgeirann að dýrustu atvinnugreininni 13. árið í röð m.t.t. netárása. © Aðsend mynd (AÐSEND) Jóhannes Stefánsson, öryggisstjóri hjá Stafrænni heilsu, sneri sér svo að framtíðinni og fór yfir hvert greinin væri að stefna og hvað þyrfti að vera til staðar svo íslenskt heilbrigðiskerfi standi styrkum fótum gagnvart vaxandi netógnum. © Aðsend mynd (AÐSEND) Að lokum steig Ari Vésteinsson, upplýsingatæknistjóri hjá Helix, á svið og fór yfir mismunandi stig hýsingar og öruggs reksturs, allt frá grunnþjónustu til víðtækari öryggisþjónustu með meðal annars vöktun og virkara eftirliti. Hann benti á að þótt aukin þjónusta og öryggi kunni að fela í sér hærri mánaðarlegan kostnað geti sú fjárfesting reynst lítil í samanburði við þann kostnað og röskun sem netöryggisatvik getur haft í för með sér.

Share this article