Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Haukar og Valur skiptu Meistarakeppnistitlunum á milli sín

Read Full Article →

Valur og Haukar mættust í Meistarakeppni HSÍ í kvöld, bæði í karla- og kvennaflokki. Hjá konunum unnu Haukar Íslands- og bikarmeistara Vals nokkuð sannfærandi, 28-36 , þar sem Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði 15 mörk fyrir Hauka en Guðrún Hekla Traustadóttir var markahæst í liði Vals með 9 mörk. Lið Hauka fagnarRÚV / Mummi Lú Íslandsmeistarar Vals höfðu hins vegar betur gegn bikarmeisturum Hauka í karlaflokki, 31-26 . Valsarinn Arnór Snær Óskarsson skoraði 9 mörk, Haukamaðurinn Freyr Aronsson 8. Arnór Snær Óskarsson fagnar markiRÚV / Mummi Lú Öllum fjórum liðunum er spáð góðu gengi í vetur, karlaliði Hauka því besta eða Íslandsmeistaratitlinum . Olísdeild karla hefst næsta fimmtudag, Olísdeild kvenna tveimur dögum síðar.

Share this article