Innlent | mbl | 28.8.2026 | 22:20 Augu heimspressunnar beinast að Íslandi Nokkrar af fyrirsögnum dagsins. Samsett mynd Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Tölfræði ráðherra um lambakjöt röng Löng röð í Kringlunni Svona falla atkvæði þingmanna: Fleiri segja nei en já NEI blasir við ökumönnum Vel viðrar til kosninga » Fleiri tengdar fréttir Ljóst er að erlendir fréttamiðlar munu margir fylgjast vel með niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna Íslands að Evrópusambandinu á morgun en nokkrir af þekktustu miðlum heims hafa þegar fjallað um atkvæðagreiðsluna í dag. Í frétt bandaríska dagblaðsins New York Times um málið sem ber titilinn „Gufubaðið er heitt og óþægilegt“ – Atkvæðagreiðsla um ESB-aðildarviðræður fær Ísland til að svitna er áhersla lögð á hve þjóðin er klofin í afstöðu sinni þar sem ekki mælist marktækur munur milli já- og neisinna í skoðanakönnunum. „Margir hafa sterkar skoðanir á því hvort Ísland eigi að viðhalda sjálfstæði sínu, sem hart var barist fyrir, eða leitast við að ná þeim stöðugleika og vernd sem fylgdi aðild að ESB,“ segir meðal annars í greininni þar sem rætt er við ýmsa Íslendinga um málið. Stóð upp frá matarborðinu Umfjöllunin hefst á frásögn af Guðlaugu Björnsdóttur nokkurri sem hafði varað fjölskyldu sína við því að ef umræðan við matarborðið snerist út í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu myndi hún standa upp og fara. „Það var því kannski óhjákvæmilegt, þrátt fyrir viðvaranir Guðlaugar, að umræðan við matarborðið í smábænum Tálknafirði á nýliðnu föstudagskvöldi beindist að lokum að þjóðaratkvæðagreiðslunni. „Ég er farin, hvort sem ykkur líkar betur eða verr,“ sagði Guðlaug, stóð upp, enn með vínglasið í hendi,“ segir síðar í greininni. Áhrif Bandaríkjaforseta reifuð Frétt annars bandarísks miðils, CNN , ber fyrirsögnina „Lítil norræn þjóð íhugar nánari tengsl við Evrópu í skugga Trumps“ en hún hefst á nokkuð íslenskan máta, með veðurlýsingum. „Frosthörkur á Íslandi vara yfirleitt í um fimm mánuði á ári, en ríkisstjórnin hefur valið blíðan sumardag fyrir stefnumarkandi þjóðaratkvæðagreiðslu sína.“ Líkt og í grein New York Times fjallar CNN um hnífjafnar skoðanakannanir í aðdraganda kosninganna en í greininni er sömuleiðis komið inn á áhrif Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á íslenska þjóðfélagsumræðu. „Almenningur á Íslandi er ekki vanur því að hugsa um landið sem hernaðarlega mikilvægt, en það er að breytast hratt um þessar mundir, að sögn Ragnars Hjálmarssonar, sérfræðings hjá íslensku hugveitunni Vörðu,“ segir meðal annars í greininni. En haft er eftir honum að aðgerðir Trump-stjórnarinnar gagnvart Grænlandi hafi valdið ákveðnum ótta. „Það hjálpaði ekki að Trump ruglaði Grænlandi ítrekað saman við Ísland þegar hann ræddi um kröfur sínar um yfirráð yfir nágrannasvæðinu á norðurslóðum,“ segir í greininni áður en haft er eftir Ragnari: „En það gerði Íslendinga líka meðvitaða um hernaðarlegt mikilvægi Íslands. Það hefur hins vegar ekki breytt því sem kjósendur eru að tala um.“ Rætt við Sigmund og Snorra Í myndskeiði fréttaveitunnar Reuters um þjóðaratkvæðagreiðsluna er sýnt frá starfi samtakanna Já til að sjá og Áfram Ísland og farið yfir hvernig staðan, bæði hér á landi og í alþjóðamálum, hefur breyst frá því að hlé var gert á viðræðum við ESB árið 2013. Þá eru dregnir fram þrír meginþættir sem fréttamaðurinn segir atkvæðagreiðsluna helst snúast um, það er hátt vaxtastig, yfirráð yfir fiskimiðum Íslands og þjóðöryggi. Í frétt miðilsins Politico , sem hefur skrifað þó nokkrar greinar um atkvæðagreiðsluna síðustu mánuði, frá því í dag er rætt við Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Snorra Másson, formann og varaformann Miðflokksins, um þeirra sýn á atkvæðagreiðsluna og Evrópusamstarf. Í umfjöllun franska miðilsins Le Monde er aftur á móti rætt við tvo stjórnarmenn í samtökum Ungra Evrópusinna um atkvæðagreiðsluna. Tengdar fréttir Ísland og ESB Tölfræði ráðherra um lambakjöt röng Löng röð í Kringlunni Svona falla atkvæði þingmanna: Fleiri segja nei en já NEI blasir við ökumönnum Vel viðrar til kosninga » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Augu heimspressunnar beinast að Íslandi „Getur verið að fjármunirnir stoppi í kerfinu?“ Kynntur til leiks hjá Aston Villa „Mér finnst heilinn minn ekki lengur vera bilaður“ Gefur nú grænt ljós á hótelíbúðir Umræðan Framtíðin undir hverjum völusteini Víti til varnaðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svona falla atkvæði þingmanna: Fleiri segja nei en já Þung staða á markaðnum Titringur á lokametrum baráttunnar Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Mest lesið Í gær Í vikunni Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Alvarlegar afleiðingar fyrir hestinn Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brynjar nýr formaður stjórnar Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Titringur á lokametrum baráttunnar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Kaffistofunni var boðið húsnæði Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Styttir heimsókn sína til Íslands Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Upptaka: Áfram Ísland á Austurvelli Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Icelandair-vél lenti í Boston af öryggisástæðum Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Nýjast á mbl.is » Augu heimspressunnar beinast að Íslandi „Getur verið að fjármunirnir stoppi í kerfinu?“ Kynntur til leiks hjá Aston Villa „Mér finnst heilinn minn ekki lengur vera bilaður“ Gefur nú grænt ljós á hótelíbúðir Umræðan Framtíðin undir hverjum völusteini Víti til varnaðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áfengi gert „meira aðlaðandi og saklausara“ Metþátttaka utan kjörfundar: Röð út á bílastæði Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Haraldur Noregskonungur látinn Mest lesið Í gær Í vikunni Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Alvarlegar afleiðingar fyrir hestinn Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brynjar nýr formaður stjórnar Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Titringur á lokametrum baráttunnar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Kaffistofunni var boðið húsnæði Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Þetta er, af geðsjúkdómum, sá lífshættulegasti“ Styttir heimsókn sína til Íslands Sólveig Anna hjólar í fyrrum samstarfsbróður Pétur upplifði að líf sitt væri í hættu Upptaka: Áfram Ísland á Austurvelli Ný þjónusta í Keflavík er ekki ný Icelandair-vél lenti í Boston af öryggisástæðum Steik í Köben á verði tveggja flugmiða Ætlaði ekki að vera á lyfjum ævilangt Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Skattakóngur ársins 2025 greiddi milljarð í skatt „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Veggjöld á nýjum kafla taka brátt gildi Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Loka