Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 4.9.2026 | 9:30 Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Hjörleifur Guttormsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Í byrjun marsmánaðar sl. kynntu forystukonur ríkisstjórnarinnar tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst nk. um áframhald viðræðna frá 2013 um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Mörgum þótti fyrirhuguð atkvæðagreiðsla um þetta á óheppilegum tíma í lok sumars, en við því varð ekki hróflað og tillagan um dagsetningu var samþykkt á Alþingi í maílok. Lengi vel fór lítið fyrir umræðu um efni hennar, en þann 6. júlí sl. héldu gagnrýnendur málsins fjölsóttan fund í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík undir heitinu Áfram Ísland. Þrátt fyrir sumarleyfi margra fjölgaði slíkum fundahöldum gagnrýnenda er nær dró, síðast með fjölsóttum útifundi á Austurvelli. Aðstandendur tillögunnar gerðu og sitt til að kynna sinn málstað og lengi vel virtist gert ráð fyrir að efnisleg samþykkt hennar væri nánast formsatriði. Þegar nú úrslit kosninganna liggja fyrir blasir það við að meirihluti landsbyggðarfólks áttaði sig á alvöru aðildar að Evrópusambandinu fyrir land og þjóð. Reykvíkingar reyndust hallari en landsbyggðarfólk undir aðild og hefðu þeir mátt ráða væri Ísland nú áfram umsóknarríki að ESB. Skilningur margra forystumanna Sjálfstæðisflokksins á alvöru þessa máls hefur reynst happadrjúgur og Miðflokkurinn hefur, þrátt fyrir um margt óljósa stefnu, fylgt í kjölfarið. Fylgismenn Vinstri græna með núverandi forystu utan þings hafa lagst á sömu sveif. Katrín Jakobsdóttir birtist nú sem öflugur talsmaður gegn aðild. Aðalatriðið er að allir stjórmálaflokkar virðast nú sammála um að aðildarumsókn að ESB sé úr sögunni í fyrirsjáanlegri framtíð. Formlegt samstarf Íslands við Evrópusambandið verði áfram að byggjast á EES-samningi Íslands með Noregi og Lichtenstein. Ísland framvegis í víðtæku samstarfi Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um síðustu helgi getur, ef rétt er að staðið, orðið stefnumarkandi fyrir stöðu Íslands í alþjóðlegu samstarfi. Lega lands okkar býður upp á samstarf til allra átta, einnig til norðurs yfir Íshafið í átt til Kyrrahafslanda. Gott samstarf við Noreg í austri og sjálfstætt Grænland norðvestur af býður upp á mikla framtíðarmöguleika. Náið og gott samstarf við Evrópusambandið og England svo og vestur um haf til Bandaríkjanna er kjölfesta sem rækta ber út frá okkar aðstæðum sem sjálfstæðs eyríkis og gagnkvæmum hagsmunum. Hjörleifur Guttormsson er náttúrufræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Mikill skellur fyrir Leeds Ósanngjarnt fyrir hina keppendurna? Hraunað yfir Liverpool úr óvæntri átt Aðsend grein: Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Byrjaði óvart en bætti Íslandsmet sitt tvívegis í sumar Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Æfingin á Íslandi gekk vonum framar „Þetta má ekki endurtaka sig“ 20 milljarðar á 20 árum Þeir stóru moka út miðum á jólasýningar Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Framkvæmir það sem henni dettur í hug Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Írskir miðlar fjalla um banaslysið „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Mikill skellur fyrir Leeds Ósanngjarnt fyrir hina keppendurna? Hraunað yfir Liverpool úr óvæntri átt Aðsend grein: Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Byrjaði óvart en bætti Íslandsmet sitt tvívegis í sumar Umræðan Stóra verkefnið bíður Glæsileg niðurstaða atkvæðagreiðslu gegn ESB-aðild Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Írskir miðlar fjalla um banaslysið Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Myndir: Tignarlegur borgarísjaki við bæjarstæðið Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður á 190 km hraða Smyglaði inn kveikjara og kveikti í „Þetta er bara leikrit og ekkert annað“ Íslenska ríkið verslaði hjá Santé eftir ákæru Einkasnekkja Ratcliffes í Reykjavíkurhöfn Óvenju mikið undir með nýrri útgáfu ChatGPT Útkall vegna umferðarslyss í Garðabæ Framkvæmir það sem henni dettur í hug Mögulegt að skylda fólk í bólusetningu Írskir miðlar fjalla um banaslysið „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Eins og blaut tuska Mjóu dósirnar kláruðust „Stærri bilun en við áttum von á“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Kemur vel til greina að fjarlægja klett „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Óvirk umferðarljós: Gatnamótunum lokað Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article