Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 29.8.2026 | 9:50 Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Borgaryfirvöld hafa hert reglur um vinnutengdar utanlandsferðir starfsmanna og vilja að mat verði lagt á raunverulegan ferðakostnað. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Reykjavíkurborg hefur hert reglur um utanlandsferðir starfsmanna borgarinnar og er nú starfsmönnum sem hyggja á vinnutengdar ferðir til útlanda skylt að afla ferðaheimildar áður en af stað er farið, sem og að gera skrifstofu borgarstjóra m.a. grein fyrir tilgangi ferðarinnar. Þetta staðfestir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið. Eftir að hinn nýi meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Viðreisnar tók við stjórnartaumunum í borginni hefur verið ráðist í ýmsar hagræðingaraðgerðir til þess að draga úr kostnaði og auka skilvirkni í þjónustu borgarinnar. Litnar gagnsýnum augum „Samhliða breytingum sem gerðar voru í ráðhúsinu í sumar kynntum við breytingar sem snúa að ferðaheimildum borgarstarfsmanna og utanlandsferðum þeirra. Nú þurfa starfsmenn að óska ferðaheimilda hjá skrifstofu borgarstjóra áður en haldið er í slíkar ferðir,“ segir Hildur. „Við köllum eftir ítarlegum upplýsingum um hverja ferð, kostnað við hana sem og hversu marga daga starfsmaðurinn verður frá störfum og hvaða kostnað Reykjavíkurborg ber af fjarvistunum. Við ræddum líka nýverið á yfirstjórnarfundi við yfirstjórn borgarinnar að líta slíkar ferðir gagnrýnum augum,“ segir hún. Hildur segir einnig að skilningur sé hjá borgaryfirvöldum á gagnsemi alþjóðasamstarfs en gæta verði aðhalds og rýna verði nytsemi ferðalaganna. Áhersla sé lögð á það við sviðsstjóra borgarinnar að þeir séu gagnrýnir á hvaða ferðir eru farnar og að sýnt verði fram á hvers vegna ferðin sé mikilvæg og hvaða gagn sé af henni fyrir Reykjavíkurborg. Ferðaheimildir séu þegar farnar að fara í gegnum skrifstofu borgarstjóra. „Ferðalög geta sannarlega verið réttlætanleg en við biðjum starfsmenn um að vera mjög gagnrýna á utanlandsferðir, hvort þær komi í raun að gagni eða hvort þeim megi hreinlega sleppa,“ segir Hildur. Spurð hvort fyrir liggi upplýsingar um kostnað borgarinnar vegna utanlandsferða starfsmanna á fundi og ráðstefnur á erlendri grund segir Hildur að margar utanlandsferðanna séu kostaðar af stéttarfélögum og borgarkerfið hafi í gegnum tíðina metið það sem svo að ferðirnar kosti borgina ekki neitt. „En það sem við erum að benda á nú er að þegar við gefum starfsfólki frí frá störfum þurfum við gjarnan að ráða inn annað fólk í afleysingar og af því hlýst auðvitað kostnaður. Við horfum á þessar ferðir öðrum augum núna og vinnum raunsannt mat á raunverulegum kostnaði á bak við ferðirnar. Því miður hefur þetta ekki verið greint nægjanlega vel hingað til en við ætlum að gera bragarbót á því. Ég held að það þurfi meiri aga í þessi mál og við ætlum að koma honum á með hinu nýja fyrirkomulagi,“ segir Hildur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Svar óskast: Nei eða já, nú eða þá? Kjörfundi hringt inn í Breiðagerðisskóla Reyna að ná til 100 verkamanna sem eru fastir í göngum Rafleiðni hefur aukist: Varað við gasmengun Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tölfræði ráðherra um lambakjöt röng Alvarlegar afleið­ingar fyrir hestinn Áfengi gert „meira aðlaðandi og saklausara“ Svona falla atkvæði þingmanna: Fleiri segja nei en já Mest lesið Í gær Í vikunni „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson Tölfræði ráðherra um lambakjöt röng Enn þrengt að umferðinni Hnífjafnt í síðustu könnuninni Stór borgarísjaki við Vestfirði Augu heimspressunnar beinast að Íslandi Gefur nú grænt ljós á hótelíbúðir Hélt að hún myndi segja já – en snerist hugur Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Alvarlegar afleið­ingar fyrir hestinn Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brynjar nýr formaður stjórnar Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Titringur á lokametrum baráttunnar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín Vél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu Nýjast á mbl.is » Starfsmönnum skylt að afla ferðaheimilda Svar óskast: Nei eða já, nú eða þá? Kjörfundi hringt inn í Breiðagerðisskóla Reyna að ná til 100 verkamanna sem eru fastir í göngum Rafleiðni hefur aukist: Varað við gasmengun Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðvörun eftir að stífla brast í Tíbet Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Nýr konungur Noregs verður Hákon VIII Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Mest lesið Í gær Í vikunni „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda Andlát: Hafsteinn Guðmundsson Tölfræði ráðherra um lambakjöt röng Enn þrengt að umferðinni Hnífjafnt í síðustu könnuninni Stór borgarísjaki við Vestfirði Augu heimspressunnar beinast að Íslandi Gefur nú grænt ljós á hótelíbúðir Hélt að hún myndi segja já – en snerist hugur Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Alvarlegar afleið­ingar fyrir hestinn Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brynjar nýr formaður stjórnar Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Titringur á lokametrum baráttunnar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín Vél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu

Share this article