Í könnun Hilton Trends, sem náði til meira en 14.000 ferðalanga í 14 löndum, sögðust 77% hafa gaman af því að skoða matvöruverslanir erlendis til að prófa staðbundinn mat og drykk. Þessi þróun hefur fengið heitið „grocery store tourism“ og hefur verið nefnd sem eitt af helstu ferðatrendum ársins 2026. Hilton Trends er í eigu Hilton hótelkeðjunnar og gefur reglulega út áhugaverðar skýrslur um ferðavenjur. Verslanir eru einnig farnar að taka eftir þessum áhuga. Í Finnlandi hafa nokkrar K-Supermarket verslanir verið skráðar sem ferðamannastaðir á Tripadvisor. Samfélagsmiðlar segja okkur hvað við eigum að prófa Það þarf ekki mikið til að finna út hvað er þess virði að prófa á nýjum stað. Þú ferð bara á TikTok eða Instagram, skrifar „best things to try in…“ og ert strax kominn með lista yfir mat, drykki og snakk sem þú vilt helst ekki fara heim án þess að prófa. Áhrifavaldar og frægt fólk hafa líka sitt að segja um hvað verður vinsælt. Erewhon í Los Angeles er gott dæmi um þetta, en verslunin hefur um árabil unnið með áhrifavöldum og þekktum nöfnum að vörum sem rata síðan beint inn á samfélagsmiðlana. Hailey Bieber-smoothie frá 2022 er líklega þekktasta dæmið. Drykkurinn seldist svo vel að Erewhon selur enn um 40.000 glös af honum á mánuði. Síðan þá hafa fleiri þekkt nöfn komið að samstarfi við verslunina og dregið fleiri vörur inn í umræðuna á samfélagsmiðlum. Hailey Bieber og frægi Strawberry Glaze Skin Smoothie frá Erewhon. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .