Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ferða­menn heillast af mat­vöru­verslunum

Read Full Article →

Það sem áður var aðeins stopp í matvöruverslun þegar eitthvað vantaði er hjá mörgum orðið hluti af ferðinni sjálfri. Í stað þess að fara inn og út gefa ferðamenn sér tíma til að skoða úrvalið, prófa vörur sem þeir þekkja ekki og leita að einhverju skemmtilegu sem er ekki til sölu í heimalandinu. Þegar komið er inn í erlenda matvöruverslun getur úrvalið líka sagt ýmislegt um staðinn. Þar sést meðal annars hvað fólk borðar í morgunmat, hvaða vörur eru vinsælar og hvað fær mest pláss í hillunum. Það er einmitt þetta sem mörgum ferðamönnum finnst skemmtilegt að skoða og prófa. Í Asíu er til dæmis verslunin 7-Eleven rosalega vinsæl meðal ferðamanna. Þar er hægt að finna alls konar tilbúnar samlokur, núðlur, snakk og drykki sem fólk er forvitið að prófa. Japanska eggjasamlokan í 7-Eleven er til dæmis orðin eitthvað sem margir vilja smakka eftir að hafa séð hana á TikTok. Úrvalið er þó ekki alls staðar eins og breytist eftir því hvar í Asíu verslunin er. Sama keðjan getur því boðið upp á allt annan mat og drykki eftir landi. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article