Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Blikar misstigu sig og FH getur jafnað á toppnum

Read Full Article →

Blikar tóku á móti eyjakonum á Kópavogsvelli og Breiðablik sem hafði þriggja stiga forskot á FH hleypti spennu í toppbaráttuna þegar Allison Grace Lowry kom ÍBV 1-0 yfir rétt í þann mund sem fyrri hálfleik lauk. Í stað þess að Blikar næðu að jafna tókst ÍBV að skora aftur þegar aðeins sex mínútur lifðu leiks. Fridrikka Clementsen gerði það og 2-0 stóð. Skömmu síðar beit Breiðablik þó frá sér þegar Elísa Viðarsdóttir minnkaði muninn í 2-1. Það dugði þó skammt og ÍBV vann 2-1 og úrslitin þýða að FH getur með sigri á Val á morgun jafnað Breiðablik að stigum á toppnum. Víkingur spyrnir frá botni Víkingur og Grindavík/Njarðvík áttust við í Fossvogi í dag. Víkingur sem hefur skrapað botninn lengi í sumar spyrnti sér af honum. Bergdís Sveinsdóttir kom Víkingi 1-0 yfir á móti með marki á 17. mínútu. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir bætti í forskot Víkings þegar hún bætti öðru marki liðsins við á 22. mínútu, 2-0. Það var svo Bergdís Sveinsdóttir sem skoraði sitt annað mark í leiknum, 22 mínútum fyrir leikslok og sá til þess að úrslitin urðu 3-0, Víkingi í hag. Víkingur hefur nú 17 stig. Viðsnúningur í Úlfarsárdal Fram og Stjarnan spiluðu í Úlfarsárdal. Fanney Lísa Jóhannesdóttir kom Garðbæingum í 1-0 á sjöundu mínútu. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir jók svo forystu Störnunnar í 2-0 ellefu mínútum síðar. En Framkonur höfðu ekki gefist upp. Alda Ólafsdóttir minnkaði muninn í 2-1 fyrir heimakonur á 23. mínútu og þannig staðan þar til skammt var eftir af leiknum. Fram sótti fjórum mínútum fyrir leikslok og sókninni lauk með öðru marki Öldu sem jafnaði þar með metin í 2-2. Það var svo á lokamínútu leiksins að Sara Svanhildur Jóhannsdóttir fullkomnaði viðsnúning Framkvenna þegar hún skoraði sigurmarkið. Fram vann 3-2 og hefur þar með 19 stig og eftir úrslit dagsins er Valur kominn á botninn en á þó leik til góða gegn FH á morgun. Loks mættust Þróttur og Þór/KA í Laugardal þar sem liðin gerðu markalaust jafntefli. Staðan í deildinni.

Share this article