Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Byrjaði að forrita níu ára

Read Full Article →

Sigurður Arnar Stefnisson var nýlega ráðinn framkvæmdastjóri sviðs stafrænnar þróunar og gagna hjá Íslandsbanka en hann hefur áratuga reynslu af tækni- og rekstrarstjórnun með sérstaka áherslu á gögn, gervigreind, stafræna umbreytingu og netöryggi. Hann starfaði síðast sem tæknistjóri netöryggissviðs hjá Gen Digital, móðurfélagi Norton og Avast, þar sem hann leiddi alþjóðlegt teymi á þriðja hundrað sérfræðinga. Áhugi Sigurðar á tölvum kviknaði snemma á lífsleiðinni en hann byrjaði að fikta við tölvuforritun aðeins níu ára gamall. „Ég keypti blöðin frá Sinclair Spectrum og var að kóða upp úr þeim inn í þá tölvu í gamla daga. Svo voru foreldrar mínir svo sniðugir að þegar ég fermdist keyptu þau handa mér PC-tölvu. Það má segja að þessir tveir punktar hafi kveikt áhuga minn á tölvum.“ Nánar er fjallað um Sigurð í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article