Reynir Finndal Grétarsson viðskiptamaður geystist óvænt fram á ritvöllinn í fyrra þegar hann sendi frá sér tvær bækur, ævisöguna Fjórar árstíðir og glæpasöguna Líf sem tilnefnd var til Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna. Á dögunum kom út eftir hann bókin Bókasafn gagnslausra hugsana auk þess sem Kortabók Íslands, sem hann sendi frá sér fyrir tíu árum, var endurútgefin. Mögulega eru fleiri bækur væntanlegar í ár. Reynir var gestur Sumarmála þar sem hann sagði þeim Guðrúnu Gunnarsdóttur og Brynhildi Björnsdóttur frá. Mikil æfing í að skrifa tölvupósta Reynir segir það hafa komið mörgum á óvart að hann skyldi byrja að skrifa bókmenntir, en bendir á að hann hafi sem viðskiptamaður skrifað mikið í starfi. Ég veit ekki hvernig aðrir vinna en ég var forstjóri í tuttugu ár og var aðallega í samskiptum, mikið í gegnum tölvupósta. Ég skrifaði allan daginn, lýsti mínum hugsunum og hvað ég vildi sjá gerast og slíkt. Það voru mörg þúsund orð á dag. Það er smá vanmetið. Fólk hefði hlessa haldið því fram að hann kynni ekkert að skrifa því hann hefði ekki gert það fyrr, en það segir Reynir af og frá. Ég segi: „Ég er búinn að skrifa eins og óður maður í tuttugu ár. Aðeins annað efni en samt að reyna að koma hugsunum í orð.“ Leið illa og sá ekki tilgang Fyrstu bækur Reynis voru Kortlagning Íslands, kortabækur sem komu úr 2017 og 2022. Fyrir tveimur árum skrifaði hann svo sjálfsævisögu sem vakti mikla athygli. Reynir segir hugmyndina að henni sprottna frá sjálfsskoðun sem hann fór í og krísu í lífinu. Ég var að átta mig á því hver ég væri. Mér leið illa og sá ekki tilgang, ég var hættur að vinna og ekki með fjölskyldu að hugsa um. Í þessum hlutverkum fékk hann ytri viðurkenningu sem hann fann ekki innan frá. Ég hugsaði: „Hvað er eiginlega að mér? Af hverju er ég ekki bara glaður og finn mér eitthvað skemmtilegt að gera?“ Þá fór ég að skrifa þessa ævisögu fyrir mig. Ekkert feimnismál að hafa notað sveppi Nýjasta bókin er svo Bókasafn gagnslausra hugsana. Þá var Reynir í mikilli sjálfsvinnu og notaði sveppi. Ég var að vinna mikið innri vinnu að heila mig og það voru sár eða sorg, gamalt sem situr í manni. Menn prófa ýmislegt og ég var að prófa svona sveppi. Það var kona sem var með meðhöndlun í því. Það aðstoðaði hann við að skoða hugann á sér. Þetta er ekki svona menn á umferðareyjum, það eru mjög margir að nota þetta. Ég ákvað að segja það bara opið, þetta er ekki feimnismál fyrir mér. Í huganum segist hann hafa fundið ýmsar gagnslausar upplýsingar. Ég áttaði mig að ég er ekki þessar hugsanir. Ég er að horfa á þær og vil þær ekki. Samt eru þær þarna. Fann hræddan átta ára strák innra með sér Einhverjar hugsanir vildi hann sjálfur geta losað sig við og ákvað að skrifa bók um hvernig það væri hægt. Úr varð bók sem er á mörkum skáldskapar og sjálfshjálpar. Sem barn kveðst hann hafa verið mikill bókaormur en hann sá ekki fyrir sér að hann yrði rithöfundur. Ég skrifaði sögur í skóla eins og margir gera. Svo kom lífið og maður fór í lögfræði sem er svolítið annar heimur, og viðskipti. Það hjálpaði Reyni að horfast í augu við sjálfan sig að skrifa. Hann kveðst hafa fundið innra með sér átta ára strák sem var hræddur. Ég þurfti ekki að skrifa lengi til að sjá strákinn. Í gegnum mína ævi hefur átta ára strákur, tilfinningar hans hafa verið að stýra mér. Að vera hræddur við að einhverjum líki ekki við hann, að hann sé ekki nógu góður eða duglegur. Vill ekki rífast við fólk, forðast átök. Í fyrsta kafla dúkkaði hann upp og það var smá opinberun fyrir mér. Kennt að vera sterkur og harka af sér Reynir er fæddur 1972, uppalinn á landsbyggðinni og segir að í uppeldinu hafi honum verið kennt að vera sterkur og að harka af sér. Það átti að undirbúa mann fyrir lífið og herða svolítið duglega. Ágætislíf, allir voru að gera sitt besta, en strákurinn var samt með hugmyndir um að hann þyrfti að vinna fyrir tilveru sinni. Alltaf að vera að, vera góður og láta fólki líka við sig. Glæpasaga í október Hann segir fólk gjarnan stoppa sig á götum og þakka sér fyrir. Margir, sérstaklega á svipuðum aldri, hafi séð sig sjálf í bókinni. Margir á þessum aldri kannast við eitthvað af þessu. Þú máttir ekki gráta, þurfti að vera sterkur fyrir aðra og svona en við sem erum 50–60 ára gömul erum að hugsa: „Er þetta eins og það verður? Af hverju líður mér svona? Af hverju finnst mér ég þurfa að gera eitthvað?“ Næst á dagskrá hjá Reyni er svo glæpasaga sem kemur út í október. Reynir Grétarsson fór í mikla sjálfsskoðun og byrjaði upp úr henni að skrifa bók. Hann kafaði inn á við og segist fljótlega hafa rekist á níu ára hræddan strák á blaðsíðunum.