Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.8.2026 | 11:02 Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Efnisatriði ferlisins háð trúnaði Kristján í Kastljós og Rúnar í Spegilinn ESA leggur blessun sína yfir fjölmiðlastyrkina » Fleiri tengdar fréttir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, segir í tölvupósti til starfsmanna félagsins að ákvörðunin um að hætta alfarið framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta og Íslandi í dag fylgi með sér fækkun starfa hjá Sýn. Fram kemur í tölvupóstinum, sem mbl.is hefur undir höndum, að uppsagnirnar nái einkum til starfsfólks sem komi að fréttaframleiðslu og fréttaflutningi í sjónvarpi. Frétt af mbl.is Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta „Þetta verður erfiður dagur fyrir starfsfólk Sýnar, en fyrst og fremst fyrir þau sem breytingarnar snerta með beinum hætti. Við biðjum ykkur um að sýna hvert öðru tillitssemi og stuðning. Við færum starfsfólkinu sem verður fyrir áhrifum af breytingunum innilegar þakkir fyrir mikilvægt og faglegt framlag til Sýnar og íslenskrar fjölmiðlunar,“ segir Herdís Dröfn í póstinum. Hann má í heild sinni lesa hér: Kæru samstarfsfélagar, Í dag hefur Sýn tilkynnt um þá erfiðu ákvörðun að hætta alfarið framleiðslu og útsendingu sjónvarpsfrétta og Íslandi í dag. Nánar er fjallað um ákvörðunina og forsendur hennar í Sýn hf.: Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta. Ákvörðunin hefur því miður í för með sér fækkun starfa hjá Sýn, einkum meðal starfsfólks sem kemur að fréttaframleiðslu og fréttaflutningi í sjónvarpi. Samtöl við þau sem breytingarnar varða fara fram í kjölfar þessarar tilkynningar. Lögð verður áhersla á að ferlið fari fram af virðingu og nærgætni gagnvart öllu því starfsfólki sem á í hlut. Boðað verður til starfsmannafundar síðar í dag þar sem farið verður yfir málið. Þetta verður erfiður dagur fyrir starfsfólk Sýnar, en fyrst og fremst fyrir þau sem breytingarnar snerta með beinum hætti. Við biðjum ykkur um að sýna hvert öðru tillitssemi og stuðning. Við færum starfsfólkinu sem verður fyrir áhrifum af breytingunum innilegar þakkir fyrir mikilvægt og faglegt framlag til Sýnar og íslenskrar fjölmiðlunar. Sýn kveður þennan sögulega kafla með stolti og þakklæti. Um leið munum við leggja okkur fram um að vinna úr þessum breytingum af fagmennsku og virðingu. Rík áhersla verður lögð á öflugan og vandaðan fréttaflutning á Vísi og Bylgjunni. Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Efnisatriði ferlisins háð trúnaði Kristján í Kastljós og Rúnar í Spegilinn ESA leggur blessun sína yfir fjölmiðlastyrkina » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Einn handtekinn eftir skotárás í Sviss Lánaður til Danmerkur Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Albert á förum frá Fiorentina? Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Segir unga fólkið hafa sigrað Dró saman milli já og nei í lokatölum Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Mest lesið Í gær Í vikunni Leituðum skjóls í helli Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Hart tekist á um bókun 35 Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Ekki bara að drekka hvítvín Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Hegðaði sér nánast eins og lifandi vera Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda Nýjast á mbl.is » Einn handtekinn eftir skotárás í Sviss Lánaður til Danmerkur Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Albert á förum frá Fiorentina? Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Leituðum skjóls í helli Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Utanríkismálanefnd kölluð saman Mest lesið Í gær Í vikunni Leituðum skjóls í helli Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Hart tekist á um bókun 35 Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Ekki bara að drekka hvítvín Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Hegðaði sér nánast eins og lifandi vera Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda

Share this article