Innlent | mbl | 31.8.2026 | 18:20 „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg“ Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. Samsett mynd mbl.is/Árni Sæberg/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Uppsagnir hjá RÚV Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Efnisatriði ferlisins háð trúnaði » Fleiri tengdar fréttir Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, segir ákvörðun um að leggja niður sjónvarpsfréttir Sýnar hafa verið erfiða en óumflýjanlega. Um 10 stöðugildi hafi orðið fyrir áhrifum af breytingunum, mest á framleiðslu og miðlun sjónvarpsfrétta. Fréttatími Sýnar hefur verið starfræktur í nærri 40 ár en tilkynnt var í dag að honum yrði hætt. Frétt af mbl.is Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Reksturinn ósjálfbær um langt skeið „Ég viðurkenni það að þetta var alls ekki auðveld ákvörðun,“ segir Herdís í skriflegu svari til mbl.is. Hún segir rekstur sjónvarpsfréttanna hafa verið ósjálfbæran um langt skeið. Ástæður þess séu meðal annars breyttar neysluvenjur almennings og tilfærsla auglýsingatekna til erlendra miðla. Þá hafi áhorf á sjónvarpsfréttir einnig dregist saman á undanförnum árum og áratugum vegna breyttrar hegðunar almennings, bæði hér á landi og erlendis. „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg,“ segir Herdís. Frétt af mbl.is Á annan tug starfsmanna sagt upp Sjálfstæð ákvörðun Í svari forstjórans kemur fram að Sýn hyggst nú beina auknum krafti að fréttaþjónustu á Vísi og Bylgjunni. Þá segir Herdís ákvörðunina um að leggja niður sjónvarpsfréttirnar vera sjálfstæða ákvörðun og ekki tengjast því að viðræður um sölu á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar til Símans hafi runnið út í sandinn. „Þetta er sjálfstæð ákvörðun en markmiðið er að tryggja sjálfbæran rekstur fréttastofu Sýnar. Í ljósi þess að Vísir og Bylgjan verða ekki seld þá myndast tækifæri til að efla þessa miðla enn frekar.“ Frétt af mbl.is Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Breyttir tímar á fjölmiðlamarkaði Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, hefur gagnrýnt ákvörðunina og sagt stjórnendur Sýnar ekki skilja mikilvægi frétta fyrir traust og ímynd fyrirtækisins. Slíkt yrði ekki mælt í krónum. Aðspurð segist Herdís ekki geta tjáð sig um þau ummæli en skilji vel vonbrigði formannsins. „Ég get svo sem ekki tjáð mig um það en ég skil vel að hún sé vonsvikin en við erum að horfast í augu við breytta tíma á fjölmiðlamarkaði.“ Hægt að takmarka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði Herdís telur jafnframt að stjórnvöld geti gert meira til að styrkja rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla. „Já, það er hægt að gera mun meira og má þar nefna að jafna samkeppnisumhverfi einkarekinna fjölmiðla, meðal annars með því að takmarka umsvif RÚV á auglýsingamarkaði,“ segir forstjórinn og bætir við að einnig sé nauðsynlegt að stjórnvöld taki á ólögmætri dreifingu og notkun á sjónvarpsefni. Tengdar fréttir Fjölmiðlar á Íslandi Uppsagnir hjá RÚV Herdís Dröfn: „Erfiður dagur“ Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Sýn hættir útsendingu sjónvarpsfrétta Efnisatriði ferlisins háð trúnaði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg“ Volvo lokar í Stokkhólmi Aston Villa – Arsenal kl. 19, bein lýsing Stærsti skóli Grænlands opnaður Fölsuðu röddina í rauntíma Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir unga fólkið hafa sigrað Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Uppsagnir hjá RÚV „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Mest lesið Í gær Í vikunni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Hart tekist á um bókun 35 Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hefja gjaldtöku: Stakt gjald að lágmarki 1.500 kr. Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Nýjast á mbl.is » „Þessi ákvörðun var því miður óumflýjanleg“ Volvo lokar í Stokkhólmi Aston Villa – Arsenal kl. 19, bein lýsing Stærsti skóli Grænlands opnaður Fölsuðu röddina í rauntíma Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Segir unga fólkið hafa sigrað Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Brugðist við niðurstöðunum Mest lesið Í gær Í vikunni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Hart tekist á um bókun 35 Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hefja gjaldtöku: Stakt gjald að lágmarki 1.500 kr. Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“