Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Milljarðatap hjá stærstu flug­félögum Kína

Read Full Article →

Þrjú stærstu ríkisreknu flugfélög Kína, Air China, China Eastern Airlines og China Southern Airlines, töpuðu samanlagt rúmlega 150 milljörðum króna á fyrri hluta ársins. Á vef WSJ segir að hækkandi eldsneytiskostnaður og veik verðlagning á innanlandsmarkaði hafi vegið þungt þrátt fyrir auknar tekjur hjá félögunum. Afkoman markar mikla breytingu frá fyrsta ársfjórðungi ársins þegar flugfélögin skiluðu öll hagnaði, meðal annars vegna mikillar eftirspurnar eftir millilandaferðum. Fjárfestar tóku illa í uppgjörin og lækkaði gengi félaganna um 4-5% í dag. Sjá einnig Beint flug milli Íslands og Kína hefst í október Eldsneytiskostnaður flugfélaganna þriggja jókst um allt að 38% á fyrri hluta ársins miðað við sama tíma í fyrra vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. China Eastern segir rekstrarumhverfið jafnframt hafa versnað vegna hás eldsneytisverðs og óvissu í alþjóðaflugi. Eftirspurn eftir flugi í Kína hefur þó haldist sterk og jókst farþegaumferð í kínverskum almenningsflugsamgöngum um 1% á tímabilinu og nam 380 milljónum farþega, samkvæmt tölum frá kínverskum flugmálayfirvöldum.

Share this article