Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vita Fræbbblarnir betur?

Read Full Article →

Það eru 11 ár liðin frá síðustu plötu Fræbbblanna og 22 ár frá plötunni þar á undan. Sveitin hefur verið starfandi frá því 1978. Hún er fyrsta pönksveit landsins og hafði mikil áhrif á íslenska tónlistarsögu. Fræbbblarnir eru á plötunni þau Arnór Snorrason, Guðmundur Þór Gunnarsson, Helgi Briem, Iðunn Magnúsdóttir, Ríkharður Friðriksson og Valgarður Guðjónsson. Nýja plata Fræbbblanna hefur verið lengi í vinnslu. Fyrstu upptökur voru hjá Sveini Kjartanssyni í Sýrlandi 2019, næst hjá Birgi Jóni Birgissyni í Sundlauginni 2021 og svo aftur hjá Svenna í Sýrlandi 2024. Það var síðan Svenni sem hljóðblandaði lögin og sá um frágang og masteringu. Atli Már Steinarsson settist niður með þeim Valgarði Guðjónssyni og Helga Briem til að ræða plötu vikunnar á Rás 2 – Fræbbblarnir vita betur!

Share this article