Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Alvotech ekki hærra síðan í febrúar

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,9% í 1,6 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Átján félög aðalmarkaðarins lækkuðu í viðskiptum dagsins og þrjú hækkuðu. Mesta breytingin var á gengi Alvotech sem hækkaði um 5,7% í 122 milljóna króna veltu. Gengi Alvotech stendur í 634 krónum á hlut eftir ríflega þriðjungshækkun í mánuðinum og hefur ekki verið hærra síðan í byrjun febrúar. hefur hækkað um ríflega þriðjung í ágúst og hefur ekki verið hærra síðan í byrjun febrúar. Alvotech tilkynnti í morgun um að Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefði tekið til afgreiðslu umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir AVT80, fyrirhugaða hliðstæðu með útskiptileika við Entyivo (vedolizumab) í áfylltri sprautu eða lyfjapenna. Útgerðarfélögin lækka Útgerðarfélögin þrjú í Kauphöllinni – Síldarvinnslan, Brim og Ísfélagið – lækkuðu öll um meira en eitt prósent í viðskiptum dagsins, sem gera má ráð fyrir að sé viðbragð við niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar um mögulegar aðildarviðræður við Evrópusambandið. Síldarvinnslan lækkaði mest af félögum Kauphallarinnar eða um 3,2% í 24 milljóna króna veltu og stendur gengi félagsins nú í 122 krónum á hlut. Hlutabréfaverð Ísfélagsins lækkaði um 2,3% í 10 milljóna króna veltu og gengi Brims lækkaði um 1,6% í 243 milljóna króna veltu. Hlutabréfaverð Kviku banka lækkaði einnig um 2,6% í tæplega 170 milljóna króna veltu og stendur nú í 13,25 krónum á hlut. Þá lækkaði gengi Icelandair um 2,2% í 14 milljóna króna veltu og stendur nú í 0,70 krónum á hlut.

Share this article