Hlutabréfaverð Alvotech hefur hækkað um 11,4% í hátt í 200 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í morgun. Gengi líftæknifyrirtækisins, sem tók stökk eftir opnun markaða vestanhafs, stendur í 500 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð. Til samanburðar var dagslokagengi Alvotech síðast hærra 6. mars síðastliðinn. Alvotech tilkynnti í morgun um að Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefði tekið til umsagnar og afgreiðslu umsókn um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir AVT16, fyrirhugaða hliðstæðu með útskiptileika við Entyivo (vedolizumab) í hettuglasi. Heildarsala á frumlyfinu Entyvio nemur um 860 milljörðum króna á ári. Gengi Alvotech tók stökk á fimmtudaginn síðasta eftir að félagið upplýsti um að það hefði lagt inn að nýju til FDA umsóknir um leyfi til markaðssetningar í Bandaríkjunum á hliðstæðum við líftæknilyfin Simponi, Simponi Aria (AVT05) og Eylea 2 mg (AVT06). Sjá einnig Alvotech hækkar um 22% Félagið sagði í umræddri tilkynningu að það hefði sent inn ítarlegt svar við athugasemdabréfi FDA tengt úttekt á framleiðsluaðstöðu félagsins síðastliðið sumar, auk þess sem að það hafi svarað þeim athugasemdum FDA sem bárust í kjölfar reglubundinnar úttektar á cGMP-framleiðsluleyfi félagsins sem fram fór í byrjun maí sl. Lisa Graver, forstjóri Alvotech, sagði í viðtali við Viðskiptablaðið að félagið miði við að bandaríska lyfjaeftirlitið FDA taki ákvörðun um umsóknir félagsins á fjórða ársfjórðungi. Hún sagði félagið áfram munu eiga í samskiptum við FDA og kanna hvort hægt sé að flýta ferlinu. Aðalatriðið sé þó að fá samþykki umsóknanna. Sjá einnig Vonast til að koma lyfjunum á markað fyrir árslok