Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Svona var stjórnar­tíð Tim Cook hjá App­le

Read Full Article →

Tim Cook lætur af störfum sem for­stjóri App­le í dag eftir 15 ár í starfi og tekur John Ternus við stjórnar­taumunum. Cook verður áfram stjórnar­for­maður félagsins. Financial Times tók af því til­efni saman tölur sem sýna um­fang breytinganna hjá App­le á valda­tíma hans. Markaðsvirði App­le hefur aukist um nærri 4.000 milljarða dala frá því Cook tók við árið 2011 og gengi hluta­bréfanna hefur hækkað um meira en 2.000%. Á sama tíma hefur félagið skilað hlut­höfum meira en 1.000 milljörðum dala með endur­kaupum eigin bréfa og arð­greiðslum. Vægi App­le í S&P 500-vísitölunni hefur nær tvöfaldast, úr rúm­lega 3% í nærri 7%, og starfsmönnum hefur fjölgað úr um 60 þúsund í 166 þúsund. Félagið rekur nú 535 verslanir í 27 löndum og svæðum. App­le hefur sent frá sér 3,1 milljarð iP­hone-síma frá því Cook tók við. Virk App­le-tæki eru nú meira en 2,5 milljarðar á heims­vísu, saman­borið við nokkur hundruð milljónir árið 2011. iP­hone stendur enn undir um helmingi tekna félagsins. Þjónustu­starf­semin, sem var lítil þegar Cook tók við, telur nú um 1,5 milljarða greiðandi áskrif­enda. Fram­legðar­hlut­fall App­le hefur jafn­framt hækkað úr um 40% árið 2011 í nærri 50% í dag. Cook skilur þó eftir sig ýmsar áskoranir. Félagið hefur þurft að greiða um 19 milljarða dala vegna skatta­mála og sam­keppnis­sekta í Evrópu og þegar tollar Bandaríkja­stjórnar voru kynntir í apríl í fyrra féll markaðsvirði App­le um 638 milljarða dala á aðeins þremur dögum. App­le er jafn­framt enn mjög háð fram­leiðslu í Kína og Taí­van. Þrátt fyrir gríðar­legan fjár­hags­legan vöxt hefur App­le aðeins bætt við fimm nýjum vél­búnaðar­flokkum á valda­tíma Cook. Þar á meðal eru App­le Watch, Air­Pods, Ho­mePod, AirTag og Vision Pro. Það verður því eitt helsta verk­efni Ternus að sýna að App­le geti aftur aukið nýsköpun, ekki síst í gervi­greind.

Share this article