Innlent | Morgunblaðið | 31.8.2026 | 20:00 Mikilvæg bókasöfn jafni aðstöðu fólks Starfsemin er fjölbreytt og margt bætist við nú þegar safnið er flutt, segir Sigrún Geirsdóttir. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Bókasöfn eru alltaf mikilvæg, enda þótt hlutverk þeirra og áherslur í starfi hafi breyst,“ segir Sigrún Guðnadóttir, forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar. „Í daglegu lífi sínu hefur fólk heimilið og vinnustaðinn og síðan má líta svo á að söfn, eins og þetta, séu þriðja rými tilverunnar. Hér er góður staður til þess að setjast niður og glugga í blöð og bækur, grípa í spil, spjalla við fólk og hingað kemur námsfólk til að læra. Starfsemin er fjölbreytt og margt bætist við nú þegar safnið er flutt á nýjan stað.“ Í ágústbyrjun voru ný húsakynni Bókasafns Hafnarfjarðar á 2. hæð verslunarmiðstöðvarinnar Fjarðar opnuð. Þar er safnið allt á einni hæð, alls um 1.700 fermetrar, sem gerir starfið mun hentugra en á fyrri stað. Heimsóknir á safnið hafa verið um 125 þúsund á ári og vænst er að þeim fjölgi nú með bættri aðstöðu. Þannig er safnið nú í raun menningarmiðstöð með rúmgóðum vinnustofum, upptökustúdíói tónlistar og hlaðvarpa, vinnurými og salarkynnum fyrir margvíslega menningarstarfsemi sem getur verið samkomustaður fjölskyldunnar allrar. Bókasafn Hafnarfjarðar á sér alls 102 ára sögu. Það var lengi til húsa við Mjósund en seinna – til síðustu 22 ára – á Strandgötu 1. Flutningur bókasafnsins á nýjan stað hefur verið í undirbúningi í nokkur ár. Ýmsir kostir voru skoðaðir en niðurstaða bæjaryfirvalda í Hafnarfirði var að flytja í Fjörð sem er í hjarta bæjarins. Horft var til margra þátta við hönnun nýs safns, þar sem Sigrún Guðnadóttir lagði sérstaka áherslu á að fá rúmgóða barnadeild og góðan fjölnotasal. Allt var þetta útfært af kúnst af hönnuðum arkitektastofunnar Ask. Barnadeildin alltaf fjölsótt „Barnadeildin hefur alltaf verið fjölsótt og starf hennar er áherslumál hjá okkur. Reglulega eru hér sögustundir sem börn af leikskólunum sækja og efnt er til ratleikja í náttúrufræðum, sem eru öðrum þræði kynning á safninu. Svona er komið til móts við krakkana með ýmsu móti og gaman að fá þau hingað inn. Almennt eru skilaboð okkar þau að hlutverk bókasafna eins og þessa sé að jafna aðstöðu fólks til afþreyingar og afla sér þekkingar. Einnig tökum við virkan þátt í hringrásarhagkerfinu með því að hér geta safngestir fengið lánaðar ekki bara bækur, heldur líka tölvuleiki, leikjatölvur, bökunarform, saumavélar, spil, smáverkfæri og fleira. Þetta er þörf þjónusta.“ Hér eru tröppurnar þar sem gengið er inn í safnið. Málaðir bókarkilir líta hér skemmtilega út. Í kosti Bókasafns Hafnarfjarðar eru alls um 80 þúsund bækur, gamlar og nýjar, ásamt öðrum safngögnum. Reynt er að taka inn að minnsta kosti eitt eintak af öllum nýjum íslenskum bókum og fleiri af þeim sem mestra vinsælda njóta. Einnig er keypt talsvert af bókum á erlendum tungum, svo sem ensku og Norðurlandamálum. Sömuleiðis á pólsku, samanber að í Hafnarfirði býr stór hópur fólks af pólskum uppruna. Pólsk menning er í brennidepli á safninu „Tæp 20% alls um 32 þúsund bæjarbúa eru með ríkisfang annað en íslenskt og mikilvægt er að veita þeim þjónustu á safninu. Pólskumælandi starfsmaður sinnir þessum hópi og finnur til bækur sem honum henta,“ segir Sigrún. Þess má geta að alltaf er efnt til hátíðar á Bókasafni Hafnarfjarðar á laugardeginum sem er næst 11. nóvember, sem er þjóðhátíðardagur Póllands. Þar er bryddað upp á ýmsu sem tengist menningu og sögu landsins þaðan sem svo margir hafa flutt á síðustu árum til Íslands og gert að nýjum heimkynnum sínum. Nær í tíma er hátíðin Heimar og himingeimar, sem verður á laugardag um næstu helgi, 4. september. Þetta er búninga- og leikjasamkoma, þar sem víkingaöld, endurreisn, Japan, Kórea og Stjörnustríð eru á meðal þess sem koma mun við sögu. Heimurinn allur er undir og ekkert stöðvar ímyndunaraflið! Hver er hún? Sigrún Geirsdóttir er frá Reyðarfirði, fædd árið 1961. Hún er upplýsingafræðingur frá Háskóla Íslands að mennt auk þess að hafa numið menningarstjórnun. Hún á að baki langan starfsferil við upplýsingamiðlun; á Borgarbókasafninu í Reykjavík, Bókasafni Kópavogs og frá 2019 hefur hún verið forstöðumaður Bókasafns Hafnarfjarðar. Þá var hún á sínum tíma formaður stéttarfélags upplýsingafræðinga, sem seinna sameinaðist öðrum í Visku, sem er félag innan BHM. Sunna Hlín Jónsdóttir og sonurinn Viktor Ari hér saman á barnadeild nýja bókasafnsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Ísland - Tyrkland, staðan er 37:60 Aston Villa - Arsenal, staðan er 0:1 „Fáránlegt“ að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta Tvöfaldur liðstyrkur til Stjörnunnar Ljóstrar upp ferðaleyndarmálum Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslendingar hafna aðildarviðræðum Á annan tug starfsmanna sagt upp Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Þessi ríkisstjórn fer ekki í viðræður við ESB Mest lesið Í gær Í vikunni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Hefja gjaldtöku: Stakt gjald að lágmarki 1.500 kr. Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ Nýjast á mbl.is » Ísland - Tyrkland, staðan er 37:60 Aston Villa - Arsenal, staðan er 0:1 „Fáránlegt“ að ríkið eitt annist flutning sjónvarpsfrétta Tvöfaldur liðstyrkur til Stjörnunnar Ljóstrar upp ferðaleyndarmálum Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óttast að netárásum muni fjölga „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Bunkarnir skilað hnífjafnri stöðu Mest lesið Í gær Í vikunni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Hefja gjaldtöku: Stakt gjald að lágmarki 1.500 kr. Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“