Innlent | Morgunblaðið | 7.9.2026 | 20:00 Bókasafn Hafnarfjarðar undirlagt Bókasafni Hafnarfjarðar í Firðinum var breytt í mismunandi ævintýraheima á hátíðinni Heimum og himingeimum um helgina. mbl.is/Anton Brink Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Nokkur þúsund manns á öllum aldri komu saman á hátíðinni Heimar og himingeimar sem haldin var á Bókasafni Hafnarfjarðar í Firðinum um liðna helgi. Unnur Helga Möller, viðburðastjóri Bókasafns Hafnarfjarðar, segir þetta þriðja skiptið sem hátíðin er haldin. Þar komi saman fólk sem hefur áhuga á búningum og búningagerð. „Það er alveg frá brynjugerð og sögulegum klæðnaði yfir í endurgerð af búningum úr kvikmyndum og búninga úr japönskum teiknimyndum. Í rauninni hvað sem er, bara svo framarlega sem það er búningur,“ segir Unnur við Morgunblaðið og bætir við að orðið búningur geti að vissu leyti verið dálítið flókið. „Búningur er í rauninni hvert það samansafn af fötum sem myndar samstæða heild sem táknar eitthvað eða stendur fyrir eitthvað.“ Breytt í ævintýraheima Sem fyrr segir var hátíðin haldin á Bókasafni Hafnarfjarðar en um 50 manns komu að undirbúningnum og segir Unnur að bókasafninu hafi verið lokað að hluta seinnipart miðvikudags sökum þess. „Það er unnið fram á nótt og pantaðar pítsur, þannig að það er unnið hörðum höndum venjulega frá fjögur á miðvikudegi og eiginlega til korter í opnun á föstudegi.“ Bókasafninu var breytt í fimm ólíka ævintýraheima þar sem var meðal annars að finna fantasíuheim, sögulegan heim, smiðjurými og Stjörnuspillinn, eða geimskip 501. herdeildarinnar, sem vakti mikla athygli á seinustu hátíð. Var geimskipið reist á nýjum stað og breyttist í heila bækistöð í nýju húsnæði Bókasafns Hafnarfjarðar. Eins og allt á hátíðinni var skipið smíðað af sjálfboðaliðum og vakti slíka athygli á hátíðinni í fyrra að hópnum barst boð um að fara með það á erlenda hátíð. Hátíðin er fyrir búningaáhugamenn á öllum aldri. mbl.is/Anton Brink Aðgangur á hátíðina er ókeypis og bendir Unnur á að hún sé algjörlega rekin af sjálfboðaliðum og styrkjum. „Það skiptir okkur miklu máli að allir hafi þann möguleika að koma og hitta okkur algjörlega óháð sinni ekónómísku stöðu. Þess vegna er þetta rekið af yndislegum sjálfboðaliðum og auðvitað með dyggum stuðningi frá Barnamenningarsjóði og Hafnarfjarðarbæ sem gera þetta mögulegt.“ Unnur segir hátíðina hafa vaxið gífurlega hratt en fyrsta árið hafi fimm þúsund manns sótt hátíðina og talan tvöfaldast í fyrra, þegar tíu þúsund búningaáhugamenn mættu í fjörðinn. Hátíðin Heimar og himingeimar var haldin um helgina. mbl.is/Anton Brink Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Svakalegt högg fyrir rithöfunda Styttist í landsliðsmanninn Sítrónuformkaka Nigellu fastur liður á mánudögum Bókasafn Hafnarfjarðar undirlagt Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Erfitt að draga hratt út ríkisútgjöldum“ Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Grænlendingar fá 29 milljarða pakka Skuldir ríkissjóðs aukist um 196 milljarða Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Þorgerður kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund Svakalegt högg fyrir rithöfunda Styttist í landsliðsmanninn Sítrónuformkaka Nigellu fastur liður á mánudögum Bókasafn Hafnarfjarðar undirlagt Umræðan Stærsti áhrifavaldurinn Samgöngur á höfuðborgarsvæðinu til 2055 Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skattarnir og gjöldin sem munu taka breytingum Lækkar heimildir en tímalínan helst óbreytt Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mest lesið Í gær Í vikunni Kílómetragjald hækki um 15,9% Rannsakað sem alvarlegt atvik Daði: „Þrýstingi létt af heimilum“ Hellisheiði lokað á austurleið Ríkisstjórnin boðar til blaðamannafundar Rukkað inn við náttúruperlur ríkisins á næsta ári Mestu hækkanir síðan á tímum Jóhönnustjórnarinnar Skaflinn gæti verið horfinn eftir 10 daga Um 40% handtekinna erlend „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar