Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vill ekki draga umsóknina til baka

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 1.9.2026 | 6:00 Vill ekki draga umsóknina til baka Ráðherra óskaði eftir því að koma fyrir nefndina í gær. mbl.is/Karítas Ólafur Pálsson Óskar Bergsson Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Rökrétt að setja ESB-málið á sama stað og áður „Auðvitað er maður svekktur“ Brussel fær kalda sturtu frá Íslendingum Niðurstaðan steinn í götu stjórnvalda í Brussel Þessi ríkisstjórn fer ekki í viðræður við ESB » Fleiri tengdar fréttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að verði umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin formlega til baka gæti það gert allt aðildarferlið lengra og torveldara fyrir íslensk framtíðarstjórnvöld ef sú staða kæmi upp síðar meir að þau vildu ganga til aðildarviðræðna við ESB. Leiðtogar stjórnarandstöðunnar hafa krafist þess í kjölfar niðurstöðunnar að umsókn Íslands, sem lögð var fram árið 2009, verði nú formlega dregin til baka. Frétt af mbl.is „Auðvitað er maður svekktur“ Hún segir í samtali við Morgunblaðið í dag ljóst að þessi ríkisstjórn muni ekki ganga til viðræðna við Evrópusambandið, en ráðherra fundaði með utanríkismálanefnd Alþingis í gær og ræddi þar stöðuna í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina. „Skilaboðin samkvæmt spurningunni voru að hefja ekki samningaviðræður að nýju. Það virðum við.“ Ráðherra segir jafnframt að hún muni leggja bókun 35 fyrir þingið í haust. Segir hún bókunina eins varfærnislega leið og hægt sé að fara til þess að treysta EES-samninginn og gæta þess að ekki verði hægt að benda á veikleikana hér á landi. Telur ráðherra sig hafa nokkurn stuðning utan ríkisstjórnar í málinu og segir til að mynda að formaður Sjálfstæðisflokksins hafi haldið fína ræðu um bókunina síðast þegar hún var til umræðu. Formaðurinn hafi við það tækifæri sagt að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að standa með EES-samningnum og telji bókunina mikilvægan þátt í að standa vörð um hann. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd, segist ekki hafa fundið hjá ráðherranum á fundinum að ríkisstjórnin hafi áttað sig á því að Íslendingar vilji ráða sínum málum sjálfir. Frétt af mbl.is Rökrétt að setja ESB-málið á sama stað og áður Utanríkisráðherra lagði til um helgina að Sigmundur yrði fyrsti flutningsmaður á ályktun um bókun 35, en hann segir það hafa verið grín og viðbrögð við þeim óþægilegu aðstæðum sem stjórnin sé nú komin í. „Ef viðbrögðin við nei í atkvæðagreiðslu um eftirgjöf á fullveldi verða til þess að þau leggja fram bókun 35, sem gengur út á það að lög sem samin eru af embættismönnum í Brussel verði æðri íslenskum lögum, þá er ríkisstjórnin alveg úr takti við raunveruleikann og virðir ekki niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd, ýjaði að því að flokkurinn myndi styðja undirritun bókunar 35. Bendir Sigurður á að verið sé að reyna að styrkja EES-samninginn og hluti af því sé að hafa ekki nein óútkljáð mál við hann. „Ég hef margoft sagt það, og m.a. í umræðum hér í þinginu, að við vorum að leita leiða í ríkisstjórninni alveg allt frá 2017 til 2024 með mismunandi hætti. Fyrst reyndum við að taka til varna. Síðan þegar hæstaréttardómurinn lá fyrir reyndum við að finna ásættanlegustu leiðina og höfum þar af leiðandi talað fyrir því til þess að styrkja samninginn,“ segir Sigurður. Segir hann þó að sjá þurfi til hver nálgun ríkisstjórnarinnar í málinu verði. Lesa má nánar um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag Tengdar fréttir Ísland og ESB Rökrétt að setja ESB-málið á sama stað og áður „Auðvitað er maður svekktur“ Brussel fær kalda sturtu frá Íslendingum Niðurstaðan steinn í götu stjórnvalda í Brussel Þessi ríkisstjórn fer ekki í viðræður við ESB » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Tveir látnir eftir hnífstungu á Times Square Mun krefja fjármálaráðherra svara Vill ekki draga umsóknina til baka Tveir kvenforsetar í essinu sínu Andlát: Óli Hjálmar Ólason Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mannskæðustu bílslys aldarinnar Á annan tug starfsmanna sagt upp „Engin orð ná utan um slíkan missi“ „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn „Engin orð ná utan um slíkan missi“ „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn fósturbarni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Hvetur til varanlegrar lækkunar Ekki við Sýn að sakast Skora á atvinnurekendur og stjórnvöld Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Leituðum skjóls í helli Nýjast á mbl.is » Tveir látnir eftir hnífstungu á Times Square Mun krefja fjármálaráðherra svara Vill ekki draga umsóknina til baka Tveir kvenforsetar í essinu sínu Andlát: Óli Hjálmar Ólason Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þessi ríkisstjórn fer ekki í viðræður við ESB Pútín óttast snöruna Óttast að netárásum muni fjölga Uppsagnir hjá RÚV Mest lesið Í gær Í vikunni Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn „Engin orð ná utan um slíkan missi“ „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn fósturbarni Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Hvetur til varanlegrar lækkunar Ekki við Sýn að sakast Skora á atvinnurekendur og stjórnvöld Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Leituðum skjóls í helli

Share this article