Innlent | mbl | 14.9.2026 | 14:51 Umsóknin ekki dregin til baka Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Kristrún Frostadóttir. Samsett mynd mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Hefja athugun á öllum flokkum, SJÁ og Áfram Ísland Deilt um afdrif ESB-umsóknar „Ekki merki um hollustu við ákveðin stjórnmálasjónarmið“ „Ein þjóð í einu landi“ Sagði ESB að aðildarviðræður hefjist ekki á ný » Fleiri tengdar fréttir „Ég vek athygli hæstvirts forseta á því að hæstvirtur forsætisráðherra á tveimur mínútum gat ekki svarað einfaldri spurningu um fyrirliggjandi staðreynd. Hún gat ekki staðfest að Ísland væri ekki umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu. Í hvaða feluleik er þessi ríkisstjórn eiginlega lent?“ Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Frétt af mbl.is Deilt um afdrif ESB-umsóknar Spurði hvort Kristrún gæti eytt óvissunni Sigmundur hóf mál sitt á því að vísa til þess að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi vikið sér hjá því að svara ítrekuðum spurningum stjórnarandstöðuþingmanna á Alþingi fyrir helgi um stöðu aðildarumsóknar Íslands að Evrópusambandinu (ESB) frá 2009. Lét ráðherra þar duga að segja stöðu hennar óbreytta, en ekki hver staðan væri, sem deilt hefur verið um lengi. Sagði Sigmundur að þegar litið væri á lista ESB yfir umsóknarríki um aðild væri Ísland þar hvergi að finna. „Getur hæstvirtur forsætisráðherra eytt óvissunni og sagt þinginu hið augljósa, að Ísland er ekki umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu?“ „Það verður ekki sóst eftir samningi“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók þá til máls og sagði það hafa verið skýrt af hálfu ríkisstjórnarinnar að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar yrði virt og engum frekari tíma þessarar ríkisstjórnar yrði eytt í aðildarferli að Evrópusambandinu. „Það verður ekki sóst eftir samningi, það verður ekki klárað. En við höfum líka sagt að eftir þessa atkvæðagreiðslu er staða Íslands gagnvart Evrópusambandinu óbreytt. Það getur vel verið að háttvirtur þingmaður vilji eyða hér tíma þingsins núna þrátt fyrir vilyrði nei-sinna um að hætta að eyða tíma þingsins og þjóðarinnar í þessu máli í að þræta um það hvort umsókn sé gild eða ekki en ég fullyrði það hér inni að ríkisstjórnin mun ekkert aðhafast meira í þessu máli. Annars vegar er fólk hér inni sem vill draga umsókn til baka, er að gera kröfu um það, enn aðrir eru ósammála því hvort hún sé gild eða ekki. Við erum ekki að tala meira um þetta ferli. Við aðhöfumst ekkert meira þegar kemur að Evrópusambandinu hvað þetta varðar.“ „Mjög undarlegt“ Því næst tók Sigmundur á ný til máls og sagði forsætisráðherrann ekki getað svarað spurningu sinni. „Hún gat ekki staðfest að Ísland væri ekki umsóknarríki um aðild að Evrópusambandinu. Í hvaða feluleik er þessi ríkisstjórn eiginlega lent? Það er síðan mjög undarlegt, finnst mér, út frá hagsmunum ríkisstjórnarinnar og flokka sem kynnu að hafa áhuga á Evrópusambandinu, að vilja halda í umsókn Össurar Skarphéðinssonar og Jóhönnu Sigurðardóttur til eilífðar og hafa það sem upphafspunkt í viðræðunum. En eftir að ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum 6. mars að boða til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sagði hæstv. forsætisráðherra: „Þetta er umræða sem hefur hangið yfir íslenskri þjóð. Nú getum við ákveðið hvort við viljum loka á þetta mál fyrir fullt og allt.“ Var ekkert að marka þau orð hæstvirtur forsætisráðherra frekar en yfirlýsingar varðandi Evrópusambandið fyrir kosningar?“ Umsóknin verði ekki dreginn til baka Í lokasvari sínu sagði Kristrún að hún hefði áður lýst því yfir að umsóknin yrði ekki dregin til baka af þessari ríkisstjórn, ekki frekar en fyrri ríkisstjórnum. „Það verður ekki meira aðhafst í þessu máli í tíma þessarar ríkisstjórnar, háttvirtur þingmaður. Ég held að þú eigir að bera virðingu fyrir þjóðinni þegar hún segir: Við viljum ekki að halda áfram með þetta mál. Við erum sátt við okkar samband núna við Evrópusambandið. Við förum ekki lengra áfram með það. Það er ekki í mínum verkahring að fullyrða það hvað gerist hér um aldur og ævi. Það geta komið upp alls konar aðstæður, það geta komið aðrar ríkisstjórnir. Ég veit ekki hvað háttvirtur þingmaður gæti tekið upp á sínum þingferli síðar ef hann situr síðar í ríkisstjórn. Ekki ætla ég að svara fyrir um allt í framtíð Íslands. Ég veit hvað þessi ríkisstjórn mun gera. Hún mun ekki halda áfram aðildarviðræðum en hún mun áfram virða gott og mikilvægt samstarf við Evrópusambandið líkt og aðrar þjóðir.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Hefja athugun á öllum flokkum, SJÁ og Áfram Ísland Deilt um afdrif ESB-umsóknar „Ekki merki um hollustu við ákveðin stjórnmálasjónarmið“ „Ein þjóð í einu landi“ Sagði ESB að aðildarviðræður hefjist ekki á ný » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Umsóknin ekki dregin til baka Boða verkfall 23. september Gaupi: Það er bara kjaftæði Úrkynjun ljúf og góð Sjálfbærnistyrkir Terra veittir í fyrsta sinn Umræðan Kosningapólitík Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ríkið verður að fara að klára þetta mál“ Vill svipta leikstjóra ísraelskum ríkisborgararétti Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Hópslagsmál í bílakjallara Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Björgunarsveit komin upp við vegg Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Flugvirkjar ósáttir með yfirlýsingar Boga Nils Of tímafrekt að nota alvöru kú Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Fagna endurskoðun vaxtarmarka Björgunarsveit komin upp við vegg Þriðjudagarnir urðu heilagir Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Björgunarsveit komin upp við vegg Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Nýjast á mbl.is » Umsóknin ekki dregin til baka Boða verkfall 23. september Gaupi: Það er bara kjaftæði Úrkynjun ljúf og góð Sjálfbærnistyrkir Terra veittir í fyrsta sinn Umræðan Kosningapólitík Við sögðum nei við ESB – næst þarf þjóðarsátt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fagna endurskoðun vaxtarmarka Of tímafrekt að nota alvöru kú Vinstri stjórnarandstaðan með forystu Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Mest lesið Í gær Í vikunni Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ Hópslagsmál í bílakjallara Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Björgunarsveit komin upp við vegg Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Flugvirkjar ósáttir með yfirlýsingar Boga Nils Of tímafrekt að nota alvöru kú Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Fagna endurskoðun vaxtarmarka Björgunarsveit komin upp við vegg Þriðjudagarnir urðu heilagir Fjórir slökkviliðsbílar sendir í Hafnarfjörð Sum býlin komin í eyði strax á 12. öld Bátur sökk í þriðja skiptið við Hafnarfjarðarhöfn Tvær þyrlur Gæslunnar kallaðar langt út á haf Taka höndum saman: 1.800 fermetra stækkun Myndskeið: Fiskikör tókust á loft Átti von á góðri þátttöku flugvirkja Neikvætt viðhorf byggt á misskilningi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Björgunarsveit komin upp við vegg Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð