Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tólf drepnir í árásum Rússa

Read Full Article →

Í það minnsta tólf voru drepnir og 21 særðist þegar Rússar réðust að Kyiv, höfuðborg Úkraínu, og nágrenni hennar með eldflaugum og drónum. Sex lestarstarfsmenn voru drepnir þegar eldflaug sprakk á birgðastöð járnbrautanna. Miklar skemmdir urðu á birgðastöðinni og verkstæði sem þar er eyðilagðist í árásinni. Átta voru drepnir í Kyiv og fjórir í nágrenni borgarinnar, meðal annars í fjölbýlishúsi í Boryspil. Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði að 50 íbúar hefðu verið fluttir á brott eftir árásina. Zelensky ítrekaði þörfina fyrir öflugar loftvarnir. Rússneska varnarmálaráðuneytið sagðist hafa gert víðtækar árásir á Úkraínu. Það sagðist hafa ráðist á iðnað sem tengdist hergagnaframleiðslu og á innviði í Odesa-héraði. Árásirnar í nótt voru gerðar í aðdraganda þess að börn mæta aftur í skólann eftir sumarfrí.

Share this article