Innlent | mbl | 1.9.2026 | 11:06 Hefði verið ástæða til að framlengja skattalækkun Langar raðir mynduðust við bensínstöðvar í gær þar sem ökumenn spöruðu nokkra hundraðkalla við að taka bensín fyrir miðnætti. mbl.is/Eyþór Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki „Það veldur okkur vonbrigðum að stjórnvöld hafi ekki framlengt þessa ráðstöfun því markaðurinn er um þessar mundir á engan hátt öðruvísi en þegar þessi ráðstöfun hófst.“ Þetta segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), um virðisaukaskattsbreytinguna sem tók gildi um miðnætti. Tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti lauk að miðnætti og hækkaði skatturinn úr 11% í 24% á ný. Lækkunin var liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu og var kynnt í apríl síðastliðnum. Runólfur segir að meðalverð á heimsmarkaði, bæði á bensíni og dísilolíu, sé svipað nú og í vor. Að hans mati var því fullt tilefni til að framlengja virðisaukaskattslækkunina til að hafa áhrif á verðlag innanlands. „Við stjórnum ekki heimsmarkaðsverði og atburðum úti í heimi en við stýrum verðinu hér með skattlagningu,“ segir Runólfur. Frétt af mbl.is Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar Heldur í vonina Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði í ágúst að áframhaldandi lækkun á virðisaukaskatti þyrfti að bíða þar til í miðjan september, hið minnsta, þar sem slík ákvörðun krefðist aðkomu þingsins sem væri í fríi. Stjórnarandstaðan kvaðst hins vegar tilbúin til að mæta til þingfundar í sumarfríinu til að framlengja ákvæðið. Þing kemur aftur saman eftir eina viku. Spurður hvort hann telji líkur á að virðisaukaskattur á eldsneyti verði aftur lækkaður kveðst Runólfur ætla að halda í vonina. Runólfur Ólafsson er formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda. mbl.is/Árni Sæberg Hækkum í samræmi við hækkun vsk Hægt er að fylgjast með eldsneytisverði á vefsíðunni Gasvaktinni . Þar má sjá að bensínlítrinn er á flestum stöðum í kringum 224-262 krónur og dísillítrinn 260-290 krónur. „[Hækkunin] virðist vera í samræmi við hækkun virðisaukaskatts,“ segir Runólfur sem hefur fylgst með hækkuninni frá miðnætti. Spurður hvort neytendur megi gera ráð fyrir frekari hækkun segir hann ólíklegt að olíufélögin muni hækka verð umfram virðisaukaskattsbreytingu. Vísar hann til þess að félögin séu til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu um þessar mundir. Frétt af mbl.is Myndu mæta og „klára málið fyrir hádegi“ Frétt af mbl.is Krefja olíufélögin skýringa á verðhækkunum Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Verður verkefni næstu daga að ræða við vitni“ Albert Guðmundsson á faraldsfæti Hefði verið ástæða til að framlengja skattalækkun Útflutningur á áli er að aukast á ný Framkvæmdir hafnar fyrir arftaka turnsins Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Góð tíðindi af moskítómálum á Íslandi Hefði verið ástæða til að framlengja skattalækkun Seðlabankastjóri sendir út aðvörun Spáir 5,5% atvinnuleysi í byrjun næsta árs Mest lesið Í gær Í vikunni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar Mun krefja fjármálaráðherra svara Eldur í bíl á Arnarnesvegi Endurflytja þarf mál vegna ummæla „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Leituðum skjóls í helli Nýjast á mbl.is » „Verður verkefni næstu daga að ræða við vitni“ Albert Guðmundsson á faraldsfæti Hefði verið ástæða til að framlengja skattalækkun Útflutningur á áli er að aukast á ný Framkvæmdir hafnar fyrir arftaka turnsins Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eldur kom upp í Holtagörðum Myndir: Ljót skemmdarverk á Meistaravöllum Hvetur til varanlegrar lækkunar Óttast að netárásum muni fjölga Mest lesið Í gær Í vikunni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar Mun krefja fjármálaráðherra svara Eldur í bíl á Arnarnesvegi Endurflytja þarf mál vegna ummæla „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Leituðum skjóls í helli