Kjörís skilaði 96,5 milljóna króna hagnaði árið 2025, samanborið við 10,7 milljóna króna hagnaði árið áður. Um er að ræða besta rekstrarár ísgerðarinnar í langan tíma. Stjórn félagsins leggur til að allt að 40 milljónir verði greiddar í arð til hluthafa á árinu 2026. Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 2019 sem Kjörís greiðir út arð. Velta Kjöríss jókst um 16,7% milli ára og nam rúmum 1,8 milljörðum króna. Rekstrarhagnaður (EBIT) fór úr 62 milljónum í 160 milljónir milli ára. Ársverk voru 49 eins og á fyrra ári. „Árið 2025 var félaginu hagstætt. Verulegur viðsnúningur hefur orðið á rekstri félagsins á árinu og hagnaður aukist umtalsvert frá fyrra ári,“ segir í skýrslu stjórnar í ársreikningi félagsins. „Ávinningur af bættum tækjakosti heldur áfram að skila sér í bættum rekstri sem og vöruþróun og markaðssókn. Kjörís kom með fjölmargar nýjungar á árinu sem fengu afbragðs viðtökur og ljóst að neytendur hafa kunnað vel að meta þær.“ Félagið segir að veðrið hafi verið með ágætum í fyrra „og má segja að það hafi verið hagstætt ísframleiðendum á liðnu ári“. Hreinn fjármagnskostnaður nam 39,8 milljónum króna í fyrra, samanborið við 48,7 milljónir árið áður. „Með betri afkomu í rekstri hefur fjármagnskostnaður lækkað, þótt slíkt geti breyst fljótt enda blikur á lofti í heimsmálum sem geta haft afgerandi áhrif á aðföng.“ Eignir Kjöríss voru bókfærðar á 968 milljónir króna í lok árs 2025 og eigið fé var um 356 milljónir króna. Kjörís er í jafnri eigu systkinanna Aldísar, Guðrúnar, Sigurbjargar og Valdimars Hafsteinsbarna. Valdimar er framkvæmdastjóri félagsins, sem er með höfuðstöðvar í Hveragerði. Guðrún Hafsteinsdóttir er formaður Sjálfstæðisflokksins. Systurfyrirtæki Kjöríss, Steingerði ehf., á fasteignina að Austurmörk 15 í Hveragerði sem hýsir starfsemi ísgerðarinnar. Fasteignin var bókfærð á 294 milljónir króna í árslok 2025.