Innlent | mbl | 1.9.2026 | 11:41 | Uppfært 12:16 Á endanum þarf að draga línu í sandinn Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Vill ekki draga umsóknina til baka Rökrétt að setja ESB-málið á sama stað og áður „Auðvitað er maður svekktur“ Brussel fær kalda sturtu frá Íslendingum Niðurstaðan steinn í götu stjórnvalda í Brussel » Fleiri tengdar fréttir „Á einhverjum tímapunkti þarf að gera það,“ segir Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í utanríkismálanefnd, spurð hvort skoða eigi að draga eigi umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu til baka. Telur þingmaðurinn þó ekki rétt að ana að neinu í þeim efnum, hvorki á næstu dögum né vikum. „Ég er á þeirri skoðun að það sé ekkert endilega æskilegt að taka ákvörðun um það á næstu dögum. Þetta kallar bara á mjög yfirvegað samtal innan þingflokka og það eru ýmsir hagsmunir sem þarf að vega og meta.“ Dagbjört segist ekki hafa gert upp við sig hvaða tímasetning væri heppilegust. Þar verði þjóðhagslegir hagsmunir að ráða. „Ég held að nú sé bara tími til þess að vega og meta ýmsar hliðar en mér finnst nauðsynlegt að það sé fyrirsjáanleiki og ég tek undir það sem formaður utanríkismálanefndar segir, að við verðum að hafa einhvern tímapunkt í þessu.“ Dagbjört (önnur frá vinstri) á fundinum í gær. mbl.is/Karítas Tekur undir sjónarmið utanríkisráðherra Utanríkisráðherra sagði í samtali við mbl.is í gær í kjölfar fundar síns með utanríkismálanefnd að það myndi gera ferlið lengra og torveldara fyrir framtíðarstjórnvöld, sem kynnu að vilja fara þessa leið síðar, ef umsóknin yrði dregin til baka. Dagbjört kveðst taka undir þau sjónarmið en segir það einnig skipta máli að fólk hafi fyrirsjáanleika og að við vitum sem þjóð hvert við viljum fara. Að þessu sögðu vill þingmaðurinn taka fram að hún telji stöðu umsóknarinnar í raun aukaatriði í stóra samhenginu. Það sem skipti mestu máli sé að Íslendingar geri upp við sig hvernig þeir ætli að virða EES-samninginn og tryggja að það verði hlustað á rödd þeirra í samfélagi þjóðanna. Frétt af mbl.is Vill ekki draga umsóknina til baka Ekki ana að niðurstöðu „Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggur fyrir og það er engin þörf á að flýta ákvörðun um stöðu umsóknarinnar,“ segir Dagbjört. Þessi ríkisstjórn muni ekki sækja um aðild að ESB á þessu kjörtímabili og hún segir ekkert benda til þess að pólitísk sátt skapist um að fara þá leið í nálægri framtíð. Þá segir hún að umræða um hvað gerist eftir yfirstandandi kjörtímabil sé ekki verkefnið núna. „Það fara kosningar fram í lok þessa kjörtímabils og þá glæðist einhver ný umræða af hálfu stjórnmálaflokkanna um það hvert við viljum stefna innan Evrópu.“ Uppfært klukkan 12:15 Dagbjört sagði um stöðu umsóknarinnar í samtali við mbl.is að spurningar væru uppi um hvernig við ætluðum að hafa umsóknina og hvort það sé tími að draga línu í sandinn. Blaðamaður spurði hana hvort hún ætti við að draga þyrfti umsóknina til baka á einhverjum tímapunkti. Dagbjört svaraði því til að á einhverjum tímapunkti þyrfti að gera það. Eftir birtingu fréttarinnar sagðist hún hafa átt við að á einhverjum tímapunkti þurfi að draga línu í sandinn með því að skoða stöðu umsóknarinnar en ekki með því að draga hana til baka. Fyrirsögn fréttarinnar og inngangur hefur verið uppfærður til samræmis við meiningu þingmannsins. Tengdar fréttir Ísland og ESB Vill ekki draga umsóknina til baka Rökrétt að setja ESB-málið á sama stað og áður „Auðvitað er maður svekktur“ Brussel fær kalda sturtu frá Íslendingum Niðurstaðan steinn í götu stjórnvalda í Brussel » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Andri Valur ráðinn framkvæmdastjóri BHM Stundum þurfa dramatískir atburðir að gerast Næstum 400 króna verðmunur á brauði Grjótharður á sviðinu Grunur um sjö hæða rússneska njósnamiðstöð í Berlín Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Einn fluttur á slysadeild með reykeitrun Hvetur til varanlegrar lækkunar „Dagurinn í dag er sorgardagur“ Endurflytja þarf mál vegna ummæla Mest lesið Í gær Í vikunni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar Mun krefja fjármálaráðherra svara Eldur í bíl á Arnarnesvegi Endurflytja þarf mál vegna ummæla Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Nýjast á mbl.is » Andri Valur ráðinn framkvæmdastjóri BHM Stundum þurfa dramatískir atburðir að gerast Næstum 400 króna verðmunur á brauði Grjótharður á sviðinu Grunur um sjö hæða rússneska njósnamiðstöð í Berlín Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefði verið ástæða til að framlengja skattalækkun Vill ekki draga umsóknina til baka Seðlabankastjóri sendir út aðvörun Hvetur til varanlegrar lækkunar Mest lesið Í gær Í vikunni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Áreitti stúlku í sumarbústað „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri Myndir: Mikil örtröð við bensínstöðvar Mun krefja fjármálaráðherra svara Eldur í bíl á Arnarnesvegi Endurflytja þarf mál vegna ummæla Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn