Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Allt þetta tal með „kassann út“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 1.9.2026 | 22:37 Allt þetta tal með „kassann út“ Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir segir það torkennilegt að hvergi sjáist á lýðnetinu að Ísland sé enn umsóknarríki en talsmaður framkvæmdastjórnar ESB segi þó í viðtali við mbl.is að umsóknin sé enn í gildi. mbl.is/Karítas Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Fundaði með utanríkisráðherra Noregs „Betri bragur“ að afturkalla ESB-umsóknina formlega Hissa á hávaða úr herbúðum Sjálfstæðisflokksins „Stemningin var hræðslan við breytingar“ Ekki vera í kapphlaupi um stærstu yfirlýsingarnar » Fleiri tengdar fréttir „Mér finnst ekki spurning að Alþingi eigi að draga umsóknina til baka, en ég vildi hins vegar vekja athygli á því að það þarf að vera mjög skýrt núna vegna þess að búið er að draga hana einu sinni til baka,“ segir Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins við mbl.is um aðildarumsóknina að Evrópusambandinu sem nú virðist stödd í óræðu limbói þingsins. Með orðum sínum um það sem hún hafi viljað vekja athygli á vísar þingmaðurinn til pistils sem hún ritar á Facebook-síðuna, sem hún sem stjórnmálamaður heldur úti, þar sem þegar í inngangi segir einfaldlega „Ísland er ekki umsóknarríki!“ Vísar hún til viðtals mbl.is í dag við talsmann framkvæmdastjórnar ESB sem kvað umsóknina enn í gildi. „Umsókn Íslands um aðild að ESB var aldrei formlega dregin til baka og er því enn í gildi,“ svaraði sá skriflega. Frétt af mbl.is Umsókn Íslands enn í gildi að mati ESB Nanna Margrét bendir á að þessar upplýsingar stangist á við það sem fram kemur á heimasíðu sambandsins og spyr sig því hvernig á því standi að þessi tiltekni talsmaður sé þar á öndverðum meiði. Eitthvað sem heitir „valid“ „Þarna er eitthvert mjög óljóst fyrirkomulag sem snýst um að við séum enn umsóknarríki þrátt fyrir að það sé hvergi sjáanlegt á netinu og þar sé búið að staðfesta að þeir séu búnir að draga umsóknina til baka. Hins vegar sé búið að samþykkja eitthvað sem heitir „valid“ sem enginn veit hvað þýðir,“ segir þingmaðurinn. „Við ættum ekki að þurfa að draga hana aftur til baka af því að það var búið að því, en ég tel réttast í ljósi niðurstöðu helgarinnar að Alþingi ætti að sameinast, allir flokkar, um að virða niðurstöðuna og setja núna punkt við þetta mál, draga umsóknina til baka hvort sem Evrópusambandið telur að hún sé enn virk eða ekki,“ segir Nanna Margrét enn fremur, þjóðin eigi skilið að fá þann punkt. Hvað fannst þér um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, komu úrslitin þér á óvart? „Maður var svolítinn tíma búinn að vera að hallast að þessu. Hefði þetta dottið á hinn veginn, hefðum við farið í þessa risavegferð með lítinn meirihluta, og mjög marga sem vildu bara sjá hvað yrði í boði, yrði að teljast býsna ólíklegt að það yrði meirihluti sem myndi samþykkja á endanum að vilja ganga inn í Evrópusambandið. Þannig að ég er fegin að þetta var niðurstaðan svo við getum farið að einbeita okkur að málum hér heima. Ég held að þetta sé miklu betra fyrir Ísland, það er ekkert skynsamlegt að hefja þessa vegferð nema með afgerandi stuðning,“ svarar hún. „ Hættið þið með þetta Evrópusamband í smástund “ Eftir allt þetta tal um „kassann út“ og ætla svo að koma tapsár og segja „jæja, nú skulum við sko fá bókun 35 [úrlausn þess hvernig leysa beri úr því þegar lög sem gera EES-reglur að íslenskum reglum stangast á við aðrar íslenskar reglur] inn í þingið“ spyr Nanna Margrét hvort ekki sé sjálfsagt að leyfa þjóðinni aðeins að anda. „Hættið þið með þetta Evrópusamband í smástund og farið bara að einbeita ykkur að því að ná niður vöxtum og verðbólgu. Ef þið viljið vera með kassann út þá byrjið þið ekki á því að koma með mál inn í þingið sem byggir á því að lög sem við innleiðum frá Evrópusambandinu verði æðri lögum sem við semjum sjálf ef þau stangast á. EES-samningurinn var samþykktur á sínum tíma með þeim fyrirvara að bókun 35 var ekki hluti af samningnum. Við erum nýstigin út úr þessari atkvæðagreiðslu þar sem Íslendingar kusu með því að Ísland hefði lokaorðið en ekki Brussel svo mér finnst þetta ósmekklegt,“ segir Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins að lokum. Tengdar fréttir Ísland og ESB Fundaði með utanríkisráðherra Noregs „Betri bragur“ að afturkalla ESB-umsóknina formlega Hissa á hávaða úr herbúðum Sjálfstæðisflokksins „Stemningin var hræðslan við breytingar“ Ekki vera í kapphlaupi um stærstu yfirlýsingarnar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Lögreglan skarst í leikinn í Vesturbæ Sameinaður með stjóranum á ný Allt þetta tal með „kassann út“ Hætta skyndilega við að selja leikmanninn Segir Þýskaland og Rússland eiga í stríði Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er ekki hollt“ Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg „Betri bragur“ að afturkalla ESB-umsóknina formlega „Grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag“ Mest lesið Í gær Í vikunni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Lögreglan skarst í leikinn í Vesturbæ Sameinaður með stjóranum á ný Allt þetta tal með „kassann út“ Hætta skyndilega við að selja leikmanninn Segir Þýskaland og Rússland eiga í stríði Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Upptaka brotaþola týndist hjá lögreglu „Stemningin var hræðslan við breytingar“ Nemendur MS sameinast í sorginni „Grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag“ Mest lesið Í gær Í vikunni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum

Share this article