Innlent | mbl | 1.9.2026 | 19:30 | Uppfært 22:45 Upptaka brotaþola týndist hjá lögreglu Konan kærði meint kynferðisbrot til lögreglu og afhenti síðar upptöku af símtali sínu við sakborninginn. Að hennar mati kom þar fram annað en maðurinn hafði sagt við skýrslutöku hjá lögreglu. Myndin er úr safni. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Símtalsupptaka sem kona afhenti lögreglu vegna rannsóknar á meintu kynferðisbroti týndist og rataði aldrei inn í gögn málsins. Hvorki héraðssaksóknari né ríkissaksóknari höfðu upptökuna undir höndum þegar ákveðið var að fella málið niður. Þá fór engin vettvangsrannsókn fram og rúmir fimm mánuðir liðu frá því að skýrsla var tekin af konunni þar til sakborningur var yfirheyrður. Þetta kemur fram í nýbirtri ársskýrslu umboðsmanns Alþingis. Umboðsmaður lauk athugun sinni á málinu í júní á síðasta ári. Taldi upptökuna stangast á við framburð Konan kærði meint kynferðisbrot til lögreglu og afhenti síðar upptöku af símtali sínu við sakborninginn. Að hennar mati kom þar fram annað en maðurinn hafði sagt við skýrslutöku hjá lögreglu. Réttargæslumaður konunnar sendi lögreglu upptökuna með tölvupósti í maí 2022. Tölvupósturinn var hins vegar ekki skráður í málakerfi lögreglunnar og hvorki pósturinn né upptakan fundust síðar í gögnum málsins. Héraðssaksóknari hafði því enga vitneskju um upptökuna þegar ákveðið var að fella málið niður í september 2023. Konan kærði þá ákvörðun til ríkissaksóknara og vakti þar sérstaka athygli á upptökunni. Ríkissaksóknari aflaði hennar þó ekki heldur heldur byggði mat sitt á lýsingu réttargæslumanns konunnar á efni símtalsins. Embættið staðfesti niðurfellingu málsins í janúar 2024. Hefði verið betra að hlusta á upptökuna Í skýringum til umboðsmanns sagði ríkissaksóknari að ekki hefði verið talið að upptakan gæti breytt mati á sönnunarstöðu málsins. Embættið viðurkenndi þó að betur hefði farið á því að afla upptökunnar og hlusta á hana áður en endanleg ákvörðun var tekin. Umboðsmaður taldi sig ekki hafa forsendur til að gera athugasemdir við niðurfellingu málsins. Athugunin leiddi engu að síður í ljós verulega annmarka á rannsókn lögreglunnar. Umboðsmaður beindi því til ríkissaksóknara að vekja athygli lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á því hvernig farið hefði verið með gögnin og grípa eftir atvikum til aðgerða svo slíkt endurtæki sig ekki. Engin vettvangsrannsókn Fleira hafði farið úrskeiðis við rannsóknina. Skýrsla var tekin af konunni 6. október 2021 en sakborningurinn var ekki yfirheyrður fyrr en 17. mars 2022, rúmum fimm mánuðum síðar. Ríkissaksóknari gerði athugasemd við þennan drátt og benti á að hraða ætti rannsóknum á nauðgunum og öðrum kynferðisbrotum. Slík mál ættu að njóta sérstaks forgangs. Þá fór lögregla ekki í vettvangsrannsókn á þeim stað þar sem hið meinta brot átti að hafa verið framið. Umboðsmaður tók undir gagnrýni ríkissaksóknara á bæði þessi atriði. Tafirnar og skortur á vettvangsrannsókn hefðu getað haft áhrif á hvaða sönnunargögn lágu fyrir þegar ákveðið var að fella málið niður. Kristín Benediktsdóttir er umboðsmaður Alþingis. Gerir hún athugasemd við vinnubrögð lögreglu í málinu. Samsett mynd Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Lögreglan skarst í leikinn í Vesturbæ Sameinaður með stjóranum á ný Allt þetta tal með „kassann út“ Hætta skyndilega við að selja leikmanninn Segir Þýskaland og Rússland eiga í stríði Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Grafalvarlegt mál fyrir íslenskt samfélag“ Upptaka brotaþola týndist hjá lögreglu Grunur um sjö hæða rússneska njósnamiðstöð í Berlín Á endanum þarf að draga línu í sandinn Mest lesið Í gær Í vikunni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Lögreglan skarst í leikinn í Vesturbæ Sameinaður með stjóranum á ný Allt þetta tal með „kassann út“ Hætta skyndilega við að selja leikmanninn Segir Þýskaland og Rússland eiga í stríði Umræðan Hagræðing eða þjónustuskerðing? Viljandi ekki sent fyrr en eftir þjóðaratkvæðið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt þetta tal með „kassann út“ Sprengja sprakk við orkuver í Þýskalandi Upptaka brotaþola týndist hjá lögreglu Segir Þýskaland og Rússland eiga í stríði Mest lesið Í gær Í vikunni Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Leituðum skjóls í helli Uppsagnir hjá RÚV Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Á annan tug starfsmanna sagt upp Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Vonsvikinn formaður: „Fólk sem skilur ekki fréttir“ Tveir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Hart tekist á um bókun 35 Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Íslendingar hafna aðildarviðræðum