Innlent | mbl | 11.9.2026 | 15:49 Greip um kynfæri lögreglumanns og kreisti Atvikið átti sér stað á lögreglustöðinni á Hverfisgötu. mbl.is/Kristinn Magnússon Setja bókamerki Kona á sextugsaldri hefur verið dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot gegn valdstjórninni og kynferðislega áreitni með því að hafa gripið um kynfæri lögreglumanns og kreist þegar verið var að færa hana í fangaklefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Atvikið átti sér stað í nóvember 2023. Konan hafði verið handtekin vegna brots gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkur og flutt á lögreglustöðina. Samkvæmt dómi var hún æst og óstýrilát, fylgdi ekki fyrirmælum og viðhafði kynferðislegt tal í garð lögreglumanna. Þegar tveir lögreglumenn voru að færa hana í fangaklefa losnaði önnur hönd hennar úr taki. Dómurinn taldi sannað að hún hefði þá gripið um kynfæri annars lögreglumannsins utanklæða og kreist. Lögreglumaðurinn varð aumur í eistum eftir atvikið. Myndband sýndi höndina færast í átt að lögreglumanninum Konan neitaði sök og sagðist muna illa eftir atvikinu vegna ölvunar. Hún hafnaði því alfarið að hafa gripið um kynfæri lögreglumannsins og sagði slíka hegðun ólíka sér. Enginn annar lögreglumaður sá sjálft gripið. Brotaþolinn greindi samstarfsmönnum sínum hins vegar frá því strax í kjölfarið. Myndbandsupptökur úr fangageymslunni vógu einnig þungt við sönnunarmat dómsins. Á þeim sést hönd konunnar losna og hún þreifa í átt að kynfærum lögreglumannsins. Ekki sést hvort hún grípur um þau en á annarri upptöku sést lögreglumaðurinn víkja sér undan með hreyfingu sem að mati dómsins gat samræmst frásögn hans. Dómurinn taldi framburð lögreglumannsins trúverðugan og að sannað væri hafið yfir skynsamlegan vafa að konan hefði gripið um kynfæri hans af ásetningi. Segir tafir á málinu ámælisverðar Við ákvörðun refsingar horfði dómurinn meðal annars til þess að tæp þrjú ár voru liðin frá atvikinu. Konunni yrði ekki kennt um þann drátt og sagði dómurinn tafirnar á meðferð málsins „ámælisverðar“. Þá hefði hún ekki gerst brotleg aftur svo séð yrði. Konan var dæmd í tveggja mánaða fangelsi, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var henni gert að greiða tæplega 698 þúsund krónur í málsvarnarlaun. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þrýstingurinn náð hættulegu og alvarlegu stigi Greip um kynfæri lögreglumanns og kreisti Flytur tjúgufánamálið nú í áttunda skipti Lykilmaður Chelsea enn fjarverandi Trump: „Þess vegna berjumst við í dag“ Umræðan Fiðrildaáhrif og lítil korn Til hvers eru Jean Monnet-styrkir hugsaðir? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sprengingar hefjast í Garðabæ í dag Vissi að heimurinn yrði aldrei samur Dagur sem enginn gleymir Íslenskt velferðarkerfi er misnotað Mest lesið Í gær Í vikunni Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Minningarstund um Hönnuh Jane Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Lýsir alvarlegri stöðu borgarinnar Sprengingar hefjast í Garðabæ í dag Flugvirkjar Icelandair greiða atkvæði um vinnustöðvun Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Eldur í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Stöðvaður á 190 km hraða Þiggja fé án þess að vinna handtak Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Nýjast á mbl.is » Þrýstingurinn náð hættulegu og alvarlegu stigi Greip um kynfæri lögreglumanns og kreisti Flytur tjúgufánamálið nú í áttunda skipti Lykilmaður Chelsea enn fjarverandi Trump: „Þess vegna berjumst við í dag“ Umræðan Fiðrildaáhrif og lítil korn Til hvers eru Jean Monnet-styrkir hugsaðir? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tæplega 600 milljarða kostnaður Von um meiri tekjur á ferðamann Fer fram á fimm ára dóm í Höfðatorgsmáli Segir lögreglu „einfaldlega giska“ Mest lesið Í gær Í vikunni Þiggja fé án þess að vinna handtak „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Dósent leiðréttir þrautseiga mýtu Minningarstund um Hönnuh Jane Myndir: Svona lítur nýja sundlaugin út Ásmundur segir af sér í stjórn SÁÁ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ Lýsir alvarlegri stöðu borgarinnar Sprengingar hefjast í Garðabæ í dag Flugvirkjar Icelandair greiða atkvæði um vinnustöðvun Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Ökumaður krossara handtekinn eftir eftirför Tóku neikvætt í hugmynd um hjúkrunarheimili Trump hringdi í Bjarna og vildi innlima Ísland Gætu þurft að „hækka aðgöngumiðann“ Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Ljósmæður bera ábyrgðina en kerfið segir nei Eldur í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag Skorað á Þorgerði að segja af sér Stöðvaður á 190 km hraða Þiggja fé án þess að vinna handtak Skordýr fundust í mat skólabarna í hádeginu Smyglaði inn kveikjara og kveikti í Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Kílómetragjald hækki um 15,9% Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur