Heiðar Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Sýnar, vísar harðlega á bug ásökunum Gavia Invest vegna sölu hans á 12,7% hlut í Sýn sumarið 2022 og segir þær „gjörsamlega fráleitar“. „Ég get hrósað þeim fyrir að rógsherferðin er vönduð,“ segir Heiðar í samtali við Viðskiptablaðið. „En þessar ásakanir þeirra eru gjörsamlega fráleitar.“ Gavia, sem nú er stærsti hluthafi Sýnar, hefur höfðað mál gegn Heiðari og félagi hans Úrsus ehf. vegna viðskiptanna. Félagið heldur því fram að Heiðar hafi búið yfir innherjaupplýsingum og haldið eftir upplýsingum um stöðu Sýnar þegar Gavia keypti hlut hans fyrir 2,2 milljarða króna á genginu 64 krónur á hlut. Heiðar segir sérstakt að kaupendur hafi tekið strax við stjórn félagsins eftir viðskiptin en leiti nú, fjórum árum síðar, eftir því að fá viðskiptin að hluta til baka. „Það sem er sérstakt er að ég sel reksturinn, nýir aðilar taka strax við honum og ætla síðan fjórum árum seinna að fá endurgreitt eftir að hafa misfarið með reksturinn á þeim tíma,“ segir hann. Ársreikningur Controlant samþykktur fyrir sölu Málið snýr meðal annars að þróun svokallaðra IoT-tekna Sýnar. Sýn upplýsti Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands í febrúar um atvik sem varða meðferð upplýsinga innan félagsins á vormánuðum og sumarið 2022. Við yfirferð á eldri rekstrargögnum vaknaði spurning um hvort uppfærð innri rekstrarspá vegna IoT-tekna hefði verið meðhöndluð í samræmi við reglur félagsins. Um svipað leyti seldi félag í eigu Heiðars hlutabréf sín í Sýn. Heiðar bendir hins vegar á að langstærstur hluti IoT-teknanna hafi á þessum tíma tengst Controlant, sem gegndi lykilhlutverki í dreifingu Covid-bóluefna Pfizer. „95% af IoT-tekjunum er Controlant,“ segir Heiðar. Hann bendir á að ársreikningur Controlant hafi verið samþykktur 21. júní 2022, aðeins nokkrum vikum áður en hann seldi hlut sinn í Sýn í júlí. Að sögn Heiðars voru horfurnar sem stjórn Controlant lýsti á þeim tíma afar jákvæðar. „Í skýrslu stjórnar segir að tekjuáætlanir félagsins séu rosalega bjartar, þetta líti rosalega vel út og verði metár. Hvernig átti ég að vita eitthvað annað en stjórn Controlant?“ segir hann. Heiðar segir ásakanirnar jafnframt fela í sér að hann hafi vísvitandi komið röngum áætlunum á framfæri. „Núna eru Reynir Grétarsson og Jón Skaftason og þetta lið að segja að ég hafi vísvitandi verið að leggja fram einhverjar falskar áætlanir,“ segir hann. Hann bendir einnig á að núverandi eigendur hafi haft stjórn félagsins í fjögur ár frá viðskiptunum og að opinberar yfirlýsingar stjórnenda eftir að hann lét af störfum hafi áfram gert ráð fyrir miklum vexti í IoT-tekjum. „Þeir eru búnir að hafa fjögur ár til að gera eitthvað í þessu. Þeir náttúrulega stýra fyrirtækinu allan þennan tíma. Ef þú lest yfirlýsingar þáverandi forstjóra og stjórnar þá er rosalegur vöxtur fram undan í IoT-tekjum,“ segir Heiðar. Sýn hefur tekið fram að félagið sé ekki aðili að dómsmáli Gavia gegn Heiðari og hafi ekki tekið afstöðu til þess hvort brot á lögum eða reglum hafi átt sér stað. Félagið hefur afhent Fjármálaeftirlitinu gögn vegna málsins en ekki fengið niðurstöðu eftirlitsins. Ágreiningurinn kemur í kjölfar opinberrar umræðu um rekstrarvanda Sýnar þar sem núverandi stjórnendur félagsins hafa áður vísað til ákvarðana sem teknar voru í tíð Heiðars. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um sagði Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, í hlaðvarpsviðtali í vor að vandræði Sýnar hafi hafst í tíð Heiðars hjá félaginu, nánar tiltekið þegar hann var stjórnarformaður, í kjölfar kaupa félagsins á 365 miðlum árið 2017. Í viðtalinu fór hún fór hún einnig yfir hversu mikill samdráttur hefur orðið í IoT-tekjum félagsins. Hún sagði IoT-tekjur Sýnar hafa verið tæplega 1,6 milljarðar króna árið 2022 - að stórum hluta vegna samstarfs við Controlant sem spilaði lykilhlutverk við dreifingu á Covid-bóluefnum fyrir Pfizer - en í fyrra voru þær undir 300 milljónum króna. Heiðar svaraði þeirri gagnrýni í júní og sagði þá söguskýringu vera „allt bara vitleysu“. Sjá einnig Heiðar: „Þetta er allt bara vitleysa“