Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi stjórnarformaður Sýnar, segir að fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið muni þurfa greiða fyrir sinn lögmannsreikning vegna málsóknar Gavia Invest, stærsta hluthafa Sýnar, á hendur honum í ljósi stjórnendatryggingar sem Sýn keypti í forstjórastjóratíð sinni. „Ég ætla að láta Sýn borga minn málarekstur,“ sagði Heiðar í nýjasta þætti Þjóðmála. Heiðar sagði að hann væri með stjórnendatryggingu eftir að hafa gegnt stöðu forstjóra félagsins á árunum 2019-2022. „Það er auðvitað ekkert hæft í þeirra málflutningi, en ef af dómsmáli verður þá mun auðvitað Sýn enda á að borga minn lögmannsreikning. Ég held að þeir hafi ekki áttað sig á því.“ Í síðustu viku var greint frá því að Gavia Invest, stærsti hluthafi Sýnar með 18,2% hlut, hefði ákveðið að höfða mál gegn Heiðari og félagi hans Úrsus ehf. vegna 2,2 milljarða króna sölu á hlut sínum í Sýn til Gavia árið 2022. Sjá einnig Sýn leitaði til FME út af meðferð innherjaupplýsinga Einar Hugi Bjarnason, lögmaður Gavia, sagði að umbjóðendur hans haldi því fram að Heiðar hafi búið yfir innherjaupplýsingum um þróun IoT-tekna og haldið eftir upplýsingum um stöðu Sýnar við söluna. Að mati Gavia hafi Heiðari mátt vera ljóst að verulegt tekjufall væri fram undan hjá félaginu. Sjá einnig „Þessar ásakanir eru gjörsamlega fráleitar“ Heiðar, sem hefur hafnað alfarið málatilbúnaði Gavia, sagði í þættinum að jafnvel þótt það væri eitthvað í málinu sem væri vert að skoða þá sé engu að síður málið löngu fyrnt. „Lög um lausafjárkaup eins og verðbréf, þau eru með tveggja ára fyrningartíma […] Þeir hefðu getað komið fram með þetta fram til sumarsins 2024 en að koma með þetta árið 2026, þá er bara verið að pönkast í mér." Formaður fjölmiðlanefndar gert sig ótrúverðugan Heiðar sagði að Einar Hugi, lögmaður Gavia, hafi gert sig algjörlega ótrúverðugan í ljósi stöðu hans sem formaður Fjölmiðlanefndar. Sjá einnig Formaður Fjölmiðlanefndar rekur mál Gavia gegn Heiðari „Formaður Fjölmiðlanefndar er í málaferlum fyrir hönd stærsta hluthafa stærsta einkarekna fjölmiðilsins, sem hann á að hafa eftirlit með, gegn fyrrum forstjóra sem er ég,“ sagði Heiðar og spurði í framhaldinu hvort þetta séu fagleg vinnubrögð. Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins sem var gestur Þjóðmála ásamt Heiðari, rifjaði upp í þessu samhengi að þegar hún sat í bankaráði Seðlabankans hafi hún fengið skýr fyrirmæli um að hún mætti ekki koma nálægt neinu sem laut að bönkum, hvorki málum gegn bönkum eða vinnu fyrir hönd banka. Gísli Freyr Valdórsson, umsjónarmaður Þjóðmála, benti jafnframt á að Hákon Stefánsson, stjórnarformaður Sýnar og náinn samstarfsmaður Reynis Grétarssonar, meirihlutaeiganda Gavia, hafi í lok síðasta mánaðar sent erindi um Ríkisútvarpið til Fjölmiðlanefndar. Einar Hugi svaraði fyrir meinta hagsmunaárekstra í viðtali við mbl.is í síðustu viku og sagði engin tengsl vera á milli málsins og starfa sinna fyrir nefndina. Enginn snertiflötur væri á milli þessa skaðabótamáls og verkefna sinna sem formaður Fjölmiðlanefndar. Rætt var um málaferli Gavia gegn Heiðari frá 1:15:00-1:21:00.