Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

For­maður Fjölmiðla­nefndar rekur mál Gavia gegn Heiðari

Read Full Article →

Einar Hugi Bjarna­son, lög­maður Gavia Invest í dóms­máli félagsins gegn Heiðari Guðjóns­syni, fyrr­verandi for­stjóra Sýnar, er jafn­framt for­maður Fjölmiðla­nefndar, sjálf­stæðrar stjórnsýslu­nefndar sem hefur lög­bundið eftir­lit með ís­lenskum fjölmiðlum. Gavia, skjól­stæðingur Einars Huga, er stærsti hlut­hafi Sýnar með 18,2% hlut, en Sýn rekur meðal annars Vísi, Stöð 2 og Bylgjuna. Fjölmiðla­nefnd annast eftir­lit sam­kvæmt lögum um fjölmiðla og dag­lega stjórnsýslu á því sviði. Nefndinni er meðal annars ætlað að standa vörð um rétt al­mennings til upp­lýsinga, fjöl­breytni og fjöl­ræði á fjölmiðla­markaði, auk eftir­lits með því að fjölmiðlar fari að lögum. Einar Hugi er for­maður nefndarinnar og var skipaður af ráðherra án til­nefningar. Á vef Fjölmiðla­nefndar kemur jafn­framt fram að hann sé hæstaréttar­lög­maður og einn eig­enda Lög­fræði­stofu Reykja­víkur. Sam­hliða því fer hann nú með mál Gavia gegn Heiðari vegna kaupa fjár­festingarfélagsins á 12,7% hlut Heiðars í Sýn árið 2022. Sýn tilkynnti hluta málsins til FME Þótt Sýn sé ekki beinn aðili að dóms­málinu hafði stjórn félagsins sjálf frum­kvæði að því fyrr á þessu ári að upp­lýsa Fjár­mála­eftir­lit Seðla­banka Ís­lands um at­vik sem varða með­ferð upp­lýsinga innan félagsins í að­draganda við­skiptanna. Félagið hefur tekið fram að það taki ekki af­stöðu til þess hvort brot á lögum eða reglum hafi átt sér stað. Heiðar hefur hafnað ásökunum Gavia al­farið og kallað mála­til­búnaðinn „gjör­sam­lega frá­leitan“. Hann hefur jafn­framt sagt að um sé að ræða „vandaða rógs­her­ferð“ gegn sér. Hann bendir einnig á að hann hafi eftir þessi at­vik tekið við stjórnar­for­mennsku í Ís­lands­banka án at­huga­semda af hálfu Fjár­mála­eftir­litsins. Sjá einnig „Þessar ásakanir eru gjör­sam­lega frá­leitar“ „Ég hef at­huga­semda­laust af hálfu FME orðið for­maður stjórnar eins stærsta fjár­mála­fyrir­tækis landsins, Ís­lands­banka. Það myndi ekki gerast ef ég væri til rannsóknar hjá þeim,“ segir Heiðar. Hann hefur jafn­framt sagt það fárán­legt að eig­endur sem keyptu reksturinn og tóku við stjórn hans leiti nú, fjórum árum síðar, eftir endur­greiðslu vegna þróunar félagsins. „Þessir aðilar keyptu reksturinn, tóku strax við honum og ætla svo fjórum árum síðar að fá endur­greitt eftir að hafa mis­farið með reksturinn. Þetta er al­gjör­lega út úr kortinu,“ segir Heiðar.

Share this article