Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gorch Fock opið almenningi í Reykjavíkurhöfn

  • What: Historic ship Gorch Fock open to public
  • Impact: Cultural event in Reykjavík
Read Full Article →

Gorch Fock er skólaskip þýska sjóhersins og eitt þekktasta seglskip Þýskalands. Skipið var smíðað árið 1958 og hefur síðan þá gegnt mikilvægu hlutverki við þjálfun sjóliðsforingja. Jafnframt er það þekkt sem „hvíti sendiherrann“ vegna hlutverks síns sem tákn þýskrar sjómennsku og alþjóðlegs samstarfs. Reykjavíkurhöfn er síðasti viðkomustaður skipsins á 189. þjálfunarferð þess erlendis áður en það heldur aftur til heimahafnar sinnar í Kiel. Gorch Fock kom síðast til Íslands í mars árið 2009. Skipið heimsótti Ísland einnig árið 1966 og hafði þá meðal annars viðkomu á Akureyri. Tækifæri gefst til skoða skipið næstu daga. Opið almenningi við Faxagarð Gorch Fock er komið til Reykjavíkur liggur við Faxagarð í Gömlu höfninni (nálægt Hörpu) og býður áhöfnin íbúum og gestum að koma um borð og kynnast skipinu í dag kl. 14:00–17:00, á morgun kl. 14:00–17:00, föstudaginn 4. september, kl. 14:00–17:00 og laugardaginn 5. september, kl. 14:00–17:00.

Share this article