Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bjóða fólki um borð í „hvíta sendiherrann“

Read Full Article →

Þýska skólaskipið Gorch Fock er komið til Reykjavíkur og verður opið almenningi næstu daga. Gorch Fock var smíðað 1958 og hefur verið notað við þjálfun sjóliðsforingja í þýska flotanum. Skipið er að ljúka 189. þjálfunarferð sinni erlendis og er Reykjavík síðasti viðkomustaðurinn. Skipið er eitt þekktasta seglskip Þjóðverja og hefur verið nefnt hvíti sendiherrann. Skipið verður opið almenningi við Faxagarð í gömlu höfninni í Reykjavík milli tvö og fimm frá miðvikudegi til föstudags. Fólk er þó beðið um að koma hvorki með töskur né bakpoka um borð. Þýska seglskipið Gorch Fock undir fullum seglum í New York í Bandaríkjunum.Aðsend

Share this article