Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tómas vildi halda vöxtum óbreyttum

Read Full Article →

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað fyrir tveimur vikum að hækka stýrivexti um 0,25 prósentur, upp í 8,0%. Um var að ræða þriðju vaxtahækkun bankans í röð. Fjórir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun en einn vildi halda vöxtum óbreyttum. Í fundargerð nefndarinnar, sem birt var um fjögurleytið í dag, kemur fram að Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, hafi greitt atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra og viljað fremur halda vöxtum óbreyttum í 7,75%. Sjá einnig „Það eru engin fórnarlömb hér“ „[Tómas] taldi m.a. að aðhald peningastefnunnar væri þegar töluvert og það hefði miðlast vel yfir í markaðsvexti og verðbólguvæntingar. Áhrif þessa mætti greina skýrt í einkaneyslu og á vinnumarkaði auk þess sem umsvif í byggingariðnaði væru að gefa eftir. Hann taldi því rétt að halda vöxtum óbreyttum en hægt væri að bregðast við á næsta fundi í október ef vísbendingar kæmu fram um annarrar umferðar áhrif olíuverðshækkana, t.d. í launaþróun,“ segir í fundargerðinni. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands. Neðri röð: Ásgeir Jónsson og Þórarinn G. Pétursson. Efri röð: Ásgerður Ósk Pétursdóttir, Tómas Brynjólfsson og Herdís Steingrímsdóttir. © Aðsend mynd (AÐSEND) Valið milli 25 punkta hækkun eða óbreyttra vaxta Peningastefnunefndin ræddi tvo meginvalkosti á vaxtaákvörðunarfundinum: að halda vöxtum óbreyttum eða að hækka þá um 0,25 prósentur. Helstu rök fyrir því að hækka vexti voru að verðbólga væri enn langt yfir markmiði, verðbólguvæntingar háar og enn nokkur hætta á annarrar umferðar áhrifum m.a. af völdum mögulegrar endurskoðunar kjarasamninga. „Bent var á að innlendur verðbólguþrýstingur hefði verið þrálátur og óvissan í verðbólguhorfum væri áfram upp á við. Einnig komu fram áhyggjur af því að aukið aðhald eins og það birtist í lengri raunvöxtum gæti gengið til baka ef vextir yrðu ekki hækkaðir nú, sem og að taumhald peningastefnunnar myndi minnka þar sem horfur væru á að verðbólga aukist enn frekar á næstu mánuðum. Slíkt væri óheppilegt þegar kjölfesta verðbólguvæntinga væri eins löskuð og raun bæri vitni.“

Share this article