Innlent | Spursmál | mbl | 2.9.2026 | 19:15 Flokkur fólksins gæti klofnað Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Utanríkisráðherra hafi vanrækt sambandið við Bandaríkin Ríkisstjórnin valdamesta aflið Ráðherra vill taka „smátíma“ Allt þetta tal með „kassann út“ Fundaði með utanríkisráðherra Noregs » Fleiri tengdar fréttir Spursmál #141. - Uppgjörið Hélt að hún myndi segja já – en snerist hugur Svar óskast: Nei eða já, nú eða þá? #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar ESB að drepa gervigreindarfyrirtækin » Fleiri tengdar fréttir Flokkur fólksins gæti klofnað í afstöðu sinni þegar Alþingi tekur fyrir tillögu um að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði formlega afturkölluð. Andrés Magnússon, blaðamaður á Morgunblaðinu, telur nokkuð ljóst að minnst tveir þingmenn flokksins muni styðja slíka tillögu og segir að Inga Sæland formaður flokksins standi frammi fyrir erfiðri ákvörðun. Þetta kemur fram í umræðum Andrésar og Andreu Sigurðardóttur, blaðamanns á Morgunblaðinu, í Spursmálum í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þar höfnuðu 52,8% kjósenda framhaldi viðræðnanna en 47,2% studdu það. Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur í kjölfarið boðað að lögð verði fram tillaga á Alþingi um formlega afturköllun aðildarumsóknarinnar. Segir trúverðugleikann í húfi Andrea segir stöðuna sérstaklega erfiða fyrir Flokk fólksins, enda sé andstaða við aðild Íslands að Evrópusambandinu hluti af stefnu flokksins. Þá hafi Inga Sæland áður lagt fram sambærilega tillögu um afturköllun umsóknarinnar. „Ef hún ætlaði síðan núna að halda línu við ríkisstjórnina og það væri bara eitthvað svona: Nei, við samþykkjum þetta ekki, þá verður trúverðugleiki flokksins gagnvart þeirra kjósendum, sem eru andvígir Evrópusambandinu, og það er vel að merkja á stefnuskrá flokksins, enginn,“ segir Andrea. Hún bendir jafnframt á að fylgi Flokks fólksins hafi minnkað verulega í skoðanakönnunum. Þegar bent hafi verið á að kjósendur flokksins virðist nú jákvæðari gagnvart Evrópusambandinu en áður þurfi að hafa í huga að hluti fyrri kjósenda flokksins hafi yfirgefið hann. Andrea veltir því upp hvort einmitt kjósendur sem harðast séu á móti Evrópusambandsaðild hafi leitað annað vegna þátttöku Flokks fólksins í ríkisstjórninni. Í þingflokki Flokks fólksins eru níu þingmenn. Guðmundur Ingi Kristinsson var í flokknum en er nú utan flokka. Ljósmynd: Alþingi/Samsett mynd. „Muni að minnsta kosti klofna“ Andrés tekur undir að flokkurinn standi frammi fyrir verulegum vanda verði tillaga um afturköllun lögð fyrir þingið. „Ég held að ef slík tillaga er tekin fyrir, þá sé í Flokki fólksins vissulega vandi á höndum. Ég held hann muni að minnsta kosti klofna í því,“ segir Andrés. Hann nefnir sérstaklega þingmennina Eyjólf Ármannsson og Sigurjón Þórðarson og telur að báðir muni styðja afturköllun umsóknarinnar. „Eyjólfur hins vegar, hann er bara mjög harður á móti og hann myndi styðja tillögu um að hún yrði dregin til baka,“ segir Andrés. Sigurjón Þórðarson sé sömuleiðis á þeirri línu. Telur Ingu geta stutt afturköllun Stærsta spurningin snýr því að afstöðu Ingu Sæland sjálfrar, sem studdi já í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Andrés telur þó ekki útilokað að hún muni styðja afturköllun umsóknarinnar. Hann túlkar stuðning hennar við já-hliðina þannig að hún hafi verið að standa við samkomulagið sem gert var við myndun ríkisstjórnarinnar. „Þetta var látið eftir Viðreisn, þetta var hluti af kaupum gegn öðru,“ segir Andrés. Nú hafi þjóðaratkvæðagreiðslan hins vegar farið fram og þar með hafi ríkisstjórnin staðið við þann hluta stjórnarsáttmálans. Að hans mati breyti það stöðu Ingu og Flokks fólksins. „Þá verður Viðreisn að eiga það áhugamál ein og óstudd,“ segir Andrés og spáir því að niðurstaða formanns Flokks fólksins kunni einfaldlega að verða: „Heyrðu, þetta var afgreitt og já, burt.“ Hér má sjá viðtalið við þau Andrés og Andreu í heild sinni: Tengdar fréttir Ísland og ESB Utanríkisráðherra hafi vanrækt sambandið við Bandaríkin Ríkisstjórnin valdamesta aflið Ráðherra vill taka „smátíma“ Allt þetta tal með „kassann út“ Fundaði með utanríkisráðherra Noregs » Fleiri tengdar fréttir Spursmál #141. - Uppgjörið Hélt að hún myndi segja já – en snerist hugur Svar óskast: Nei eða já, nú eða þá? #140. - Titringur á lokametrum baráttunnar ESB að drepa gervigreindarfyrirtækin » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Alexander Skarsgård væntanlegur á RIFF Danmerkurmeistararnir í Meistaradeildina Meira en helmingur flugmanna sofnað við störf Flokkur fólksins gæti klofnað Stærsta heimboð Reykjanesbæjar Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland dregist aftur úr í netöryggi Olíuverð hækkar á versta tíma fyrir verðbólguna Ríkisstjórnin valdamesta aflið Markaðurinn sýndi engin viðbrögð Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Ráðherra vill taka „smátíma“ „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi Ríkisstjórnin valdamesta aflið Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Alexander Skarsgård væntanlegur á RIFF Danmerkurmeistararnir í Meistaradeildina Meira en helmingur flugmanna sofnað við störf Flokkur fólksins gæti klofnað Stærsta heimboð Reykjanesbæjar Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Olíuverð hækkar á versta tíma fyrir verðbólguna Hámarksrefsing verði tvöfölduð Viðbrögð við árás æfð með Bandaríkjaher Allt þetta tal með „kassann út“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Ráðherra vill taka „smátíma“ „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi Ríkisstjórnin valdamesta aflið Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Bakslag fyrir Brussel“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar