Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Heiðrún: „Dýr verður Flokkur fólksins allur“

Read Full Article →

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), gagnrýndi harðlega stefnu Flokks fólksins í sjávarútvegsmálum í nýjasta hlaðvarpsþætti Þjóðmála og sagði flokkinn í grunninn vinna að því að grafa undan fiskveiðistjórnunarkerfinu. Hún telur að fórnarkostnaður þess að fá Flokk fólksins, sem er andvígur inngöngu í Evrópusambandið, á vagninn er varðar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB sé að Samfylkingin og Viðreisn þurfi að hleypa í gegn ákveðnum málum, þar á meðal tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu og öðrum umdeildum málum á sviði sjávarútvegs. „Svo maður segi nú bara á mannamáli hver stefna Flokks fólksins er í sjávarútvegsmálum, það er bara að eyðileggja kerfið,“ sagði Heiðrún. „Það sem er núna að koma, að taka af hlutdeildarsetningu í grásleppu, leggja niður rækju- og skelbætur og línuívilnun, og setja allt í strandveiðarnar – þetta er bara vegferðin. Það er það sem Flokkur fólksins fær fyrir að þýðast hina tvo flokkana í Evrópusambandsmálum. Hvað meira þarf íslenskur almenningur að greiða fyrir enn eitt kannski bjölluatið?“ Heiðrún bætti síðan við: „Dýr verður Flokkur fólksins allur.“ Orkumálum fórnað síðast Heiðrún sagðist hafa heyrt því fleygt að þegar viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu hófust í tíð ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og VG árið 2009 hafi fórnarkostnaður þess að sannfæra síðarnefnda flokkinn að taka þátt í þeirri vegferð verið að öll orkuvinnslu yrði sett á frost. „Við erum að súpa seyðið af því árið 2026, þannig að það var mikill kostnaður sem fór í þá vegferð.“ Heiðrún ræddi um fórnarkostnað aðildaumsóknar að ESB frá 23:20-25:10.

Share this article