Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Einn af hverjum sex fólkbílum frá Kína

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.9.2026 | 20:52 Einn af hverjum sex fólkbílum frá Kína Nýskráning kínverskra bíla hefur aukist mikið hér á landi síðustu ár og voru kínverskar undirtegundir efstar á lista yfir nýskráningar síðustu tvo mánuði. Samsett mynd Þorsteinn Ásgrímsson [email protected] Setja bókamerki Það má með sönnu segja að kínverska innreiðin á bílamarkað sé komin á fullt skrið hér á landi, en gríðarleg breyting hefur orðið á aðeins tveimur árum. Það sem af er þessu ári hefur 17% af nýskráðum fólksbílum hér á landi komið frá Kína. Það gerir um einn af hverjum sex nýskráðum bílum. Hefur þetta hlutfall hækkað hratt, en árið 2024 voru kínverskir fólksbílar aðeins 2,8% af heildarfjöldanum. Meðal tegunda þar sem sprenging hefur orðið í sölu er XPENG, en enginn bíll var nýskráður árið 2023 en eru nú á fjórða hundrað árlega. Nú þegar hafa fleiri kínverskir bílar verið nýskráðir hér á landi en allt árið í fyrra. Efstir tvo mánuði í röð Síðustu tvo mánuði hafa kínverskir bílar einnig verið þær mest skráðu undirgerðir hér á landi, en það er í fyrsta sinn sem það gerist. Þannig var XPENG G6 efstur á lista í ágúst og BYD Seal U DM-i efstur í júlí. Þetta er meðal þess sem má lesa úr tölfræði Samgöngustofu um nýskráningar bíla hér á landi. Stærri kínverskum bílum fjölgar líka Fjöldi nýskráðra hópbíla, sendibíla og vörubíla sem koma frá Kína hefur einnig aukist talsvert, en aukningin er minni hlutfallslega en í tilfelli fólksbíla. Var hlutfallið 1,5% af öllum nýskráðum bílum í þeim flokki árið 2024, en fór upp í 7,7% í fyrra og er það sem af er þessu ári í 4,7%. Stóra stökkið milli 2023 og 2024 Frá janúar og út ágúst er fjöldi nýskráðra kínverskra fólksbíla 1.787, en allt árið í fyrra voru þeir 1.487. Það ár kom risastórt stökk í sölu kínverskra fólksbíla, en árið 2023 höfðu aðeins verið skráðir inn 325 slíkir bílar. Söluhæsti kínverski bíllinn síðustu þrjú ár hefur verið BYD, en var þar á undan MG. Í fyrra voru nýskráðir BYD fólksbílar 516 talsins auk 81 stærri bíla. Það sem af er þessu ári hafa 482 slíkir fólksbílar verið skráðir og þrír stærri bílar. Nýskráðir MG bílar voru í fyrra 463 og eru á þessu ári orðnir 440. Fjöldinn orðinn 4.600 bílar á fjórum árum Önnur tegund sem hefur tekið stórt stökk var XPENG, en árið 2023 var enginn slíkur bíll nýskráður á Íslandi. Árið eftir voru þeir 44, en árið 2025 fór fjöldinn upp í 309 og í ár er hann kominn upp í 332. Leapmotor var heldur ekki á kortinu fyrir tveimur árum. Í fyrra voru svo nýskráðir fjórir bílar af þeirri tegund en það sem af er þessu ári hafa þeir verið 166. Samtals hafa 4.600 kínverskir bílar verið nýskráðir hér á landi síðustu fjögur ár, en af þeim eru 3.250 þeirra BYD, MG eða XPENG. Aðrar tegundir eru meðal annars Smart, Maxus, FAW, Great wall motors, Higer, King Long, JAC og DFSK. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Einn af hverjum sex fólkbílum frá Kína Þýskur kafbátur háskalegur á ný Einn vann 1,9 milljónir Tiger Woods sviptur ökuréttindum í fimm ár Norska félagið kaupir leikmann Keflavíkur Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland dregist aftur úr í netöryggi Enn eitt innbrot í svínabú Stjörnugríss Hvernig myrða þeir svo sannfærandi sé? Hámarksrefsing verði tvöfölduð Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Bakslag fyrir Brussel“ „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Einn af hverjum sex fólkbílum frá Kína Þýskur kafbátur háskalegur á ný Einn vann 1,9 milljónir Tiger Woods sviptur ökuréttindum í fimm ár Norska félagið kaupir leikmann Keflavíkur Umræðan Meiri umræðu um menntamál Betur heima setið en af stað farið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bruni á Laugavegi: Tveir fluttir á bráðadeild „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Hvernig myrða þeir svo sannfærandi sé? „Það var kominn minkur inn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Lögðu kerti og blóm við Ráðhúsið Nemendur MS sameinast í sorginni Vill ekki draga umsóknina til baka Mannskæðustu bílslys aldarinnar Minnast hinna látnu við Krýsuvíkurveg Áreitti stúlku í sumarbústað Boða til minningarstunda Milljónatjón vegna skemmdarverka á Akureyri „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Bakslag fyrir Brussel“ „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar

Share this article