Innlent | mbl | 3.9.2026 | 7:30 | Uppfært 9:17 Einn af hverjum sex fólksbílum frá Kína Nýskráning kínverskra bíla hefur aukist mikið hér á landi síðustu ár og voru kínverskar undirtegundir efstar á lista yfir nýskráningar síðustu tvo mánuði. Samsett mynd Þorsteinn Ásgrímsson [email protected] Setja bókamerki Það má með sönnu segja að kínverska innreiðin á bílamarkað sé komin á fullt skrið hér á landi, en gríðarleg breyting hefur orðið á aðeins tveimur árum. Það sem af er þessu ári hefur 17% af nýskráðum fólksbílum hér á landi komið frá Kína. Það gerir um einn af hverjum sex nýskráðum bílum. Hefur þetta hlutfall hækkað hratt, en árið 2024 voru kínverskir fólksbílar aðeins 2,8% af heildarfjöldanum. Meðal tegunda þar sem sprenging hefur orðið í sölu er XPENG, en enginn bíll var nýskráður árið 2023 en eru nú á fjórða hundrað árlega. Nú þegar hafa fleiri kínverskir bílar verið nýskráðir hér á landi en allt árið í fyrra. Efstir tvo mánuði í röð Síðustu tvo mánuði hafa kínverskir bílar einnig verið þær mest skráðu undirgerðir hér á landi, en það er í fyrsta sinn sem það gerist. Þannig var XPENG G6 efstur á lista í ágúst og BYD Seal U DM-i efstur í júlí. Þetta er meðal þess sem má lesa úr tölfræði Samgöngustofu um nýskráningar bíla hér á landi. Stærri kínverskum bílum fjölgar líka Fjöldi nýskráðra hópbíla, sendibíla og vörubíla sem koma frá Kína hefur einnig aukist talsvert, en aukningin er minni hlutfallslega en í tilfelli fólksbíla. Var hlutfallið 1,5% af öllum nýskráðum bílum í þeim flokki árið 2024, en fór upp í 7,7% í fyrra og er það sem af er þessu ári í 4,7%. Stóra stökkið milli 2023 og 2024 Frá janúar og út ágúst er fjöldi nýskráðra kínverskra fólksbíla 1.787, en allt árið í fyrra voru þeir 1.487. Það ár kom risastórt stökk í sölu kínverskra fólksbíla, en árið 2023 höfðu aðeins verið skráðir inn 325 slíkir bílar. Söluhæsti kínverski bíllinn síðustu þrjú ár hefur verið BYD, en var þar á undan MG. Í fyrra voru nýskráðir BYD fólksbílar 516 talsins auk 81 stærri bíla. Það sem af er þessu ári hafa 482 slíkir fólksbílar verið skráðir og þrír stærri bílar. Nýskráðir MG bílar voru í fyrra 463 og eru á þessu ári orðnir 440. Fjöldinn orðinn 4.600 bílar á fjórum árum Önnur tegund sem hefur tekið stórt stökk var XPENG, en árið 2023 var enginn slíkur bíll nýskráður á Íslandi. Árið eftir voru þeir 44, en árið 2025 fór fjöldinn upp í 309 og í ár er hann kominn upp í 332. Leapmotor var heldur ekki á kortinu fyrir tveimur árum. Í fyrra voru svo nýskráðir fjórir bílar af þeirri tegund en það sem af er þessu ári hafa þeir verið 166. Samtals hafa 4.600 kínverskir bílar verið nýskráðir hér á landi síðustu fjögur ár, en af þeim eru 3.250 þeirra BYD, MG eða XPENG. Aðrar tegundir eru meðal annars Smart, Maxus, FAW, Great wall motors, Higer, King Long, JAC og DFSK. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Maradona hefði átt að vera lagður inn á sjúkrahús „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Áhöfn verður að hafa gilt vottorð Um 70% íbúða þegar seldar í Hnjúkamóa Leita að vitnum eftir meiriháttar skemmdarverk Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Ríkið borgar brúsann Einn af hverjum sex fólksbílum frá Kína Mest lesið Í gær Í vikunni Eins og blaut tuska Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Bankaskattar hér fimmfalt hærri Eldur í Rimaskóla og í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ Yfir þúsund vörur lækka í verði hjá IKEA Einn af hverjum sex fólksbílum frá Kína Flokkur fólksins gæti klofnað Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Maradona hefði átt að vera lagður inn á sjúkrahús „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Áhöfn verður að hafa gilt vottorð Um 70% íbúða þegar seldar í Hnjúkamóa Leita að vitnum eftir meiriháttar skemmdarverk Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enn eitt innbrot í svínabú Stjörnugríss Olíuverð hækkar á versta tíma fyrir verðbólguna Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Eins og blaut tuska Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Bankaskattar hér fimmfalt hærri Eldur í Rimaskóla og í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ Yfir þúsund vörur lækka í verði hjá IKEA Einn af hverjum sex fólksbílum frá Kína Flokkur fólksins gæti klofnað Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar