Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Danska leyniþjónustan: Dönsk fyrirtæki orðin skotmörk Rússa

  • What: Danish intelligence warns of Russian efforts to target Danish companies
  • Impact: Defense and security sectors in Denmark are at risk
Read Full Article →

Dönsk stjórnvöld greindu í kvöld frá því að Rússar hefðu lagt á ráðin um að vinna skemmdarverk sem beinast gegn dönskum fyrirtækjum. Meðal skotmarka Rússa eru fyrirtæki í varnariðnaði sem veita Úkraínu hernaðaraðstoð. Það segir Emil Græsholm, yfirmaður gagnnjósna hjá dönsku leyniþjónustunni, PET, í samtali við Berlingske . „Þetta er ekki aðeins viðvörun um að svona nokkuð geti gerst í Danmörku einn daginn. Við sjáum að undirbúningur er hafinn. Af alvöru,“ segir Græsholm. Það er óalgengt að starfsmenn PET veiti fjölmiðlum viðtöl. Græsholm segir að í ljósi alvarleikans telji PET það nauðsynlegt að greina frá þessari ógn því hana þurfi að taka alvarlega. Í svari leyniþjónustunnar við fyrirspurn danska ríkisútvarpsins, DR, segir að Rússar hafi reynt að ráða Dani til þess að sinna njósnum. Það hafi meðal annars verið gert á samfélagsmiðlum. Leitast hafi verið eftir því að fólk taki ljósmyndir af fyrirtækjum eða mannvirkjum. „Það væri grafalvarlegt ef almenningur í Danmörku aðstoðaði rússnesku leyniþjónustuna, hvort sem það væri gert af ásetningi eða óvart,“ segir Græsholm við DR .

Share this article