Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Áhöfn verður að hafa gilt vottorð

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 3.9.2026 | 9:00 Allir í áhöfn þurfa vottorð frá lækni Heyrst hefur af því að krafa um læknisvottorð áhafna til að lögskrá skip hafi komið einhverjum rekstraraðilum farþegaskipa á óvart. mbl.is/Árni Sæberg Óli Kristján Ármannsson [email protected] Setja bókamerki Með breytingum á lögskráningarkerfi farþegaskipa um næstu mánaðamót fá skipverjar ekki lögskráningu nema þeir séu með gilt læknisvottorð sjómannalæknis. Frá og með 1. október virkjast lás í Skútunni, lögskráningarkerfi sjómanna hjá Samgöngustofu. Breytingin virðist hafa komið hluta þeirra sem annast hvalaskoðun á óvart og nefndi heimildarmaður blaðsins aukinn kostnað í því samhengi. Læknisvottorð kosti um 37 þúsund krónur og gildi bara í tvö ár. Kostnaðurinn leggist á allt starfsfólk um borð og bætist við kostnað vegna hópa- og neyðarnámskeiðs. Reglur frá 2004 „Þessar reglur eru ekki nýjar og hafa raunar verið í gildi frá árinu 2004,“ segir Þórhildur Elín Elínardóttir samskiptastjóri Samgöngustofu. Í október verður lögskráningarkerfi skipa hins vegar tengt kröfum sem gerðar eru um að áhafnir farþegaskipa séu með gilt heilbrigðisvottorð frá sjómannalækni. Krafan um vottorð segir hún að hafi lengi verið í gildi, en breytingin á lögskráningarkerfinu núna kemur í veg fyrir að hægt verði að lögskrá skip án þess að vottorð skipverja séu í lagi. „Með þessu er verið að tryggja að kerfin vinni betur saman og ganga úr skugga um að allar kröfur séu uppfylltar.“ Að baki kröfum um heilbrigðisvottorð segir Þórhildur liggja alþjóðasamþykktir sem Ísland sé aðili að. „Og ekki verið að gera sérstakar kröfur umfram það sem verið hefur.“ Þórhildur Elín Elínardóttir Farþegaskip og þá kannski sérstaklega hvalaskoðunarskip sem lögskrá daglega og eru með tíð áhafnarskipti vegna fjölda ferða finni nú fyrir því að vottorðin þurfi að liggja fyrir og vera í fullu gildi. Reglum samkvæmt er óheimilt að leggja skipi úr höfn nema allir skipverjar hafi verið lögskráðir. Þórhildur bendir á að farþegabátar hafi farþegaleyfi fyrir tiltekinn fjölda farþega og mönnunarkröfur tengist þeim fjölda og hlutverki áhafnarmeðlima í neyðaráætlun skipanna. „Hver skipverji gegnir ákveðnu hlutverki um borð og þarf að vera í stakk búinn til að sinna því. Það er ekki léttvægt að skipverjar þurfi að vera líkamlega heilbrigðir til að geta sinnt þessum skyldum sínum ef eitthvað kemur upp á.“ Fullyrðir ekki um brotalöm Hvort það að breytingin komi rekstraraðilum á óvart kunni að vera vísbending um að brotalöm hafi verið á því að áhafnir væru með gild vottorð segir Þórhildur erfitt að fullyrða um. „Eftirlitið á vettvangi er í höndum Landhelgisgæslunnar og með bættu rafrænu eftirliti í lögskráningarkerfinu verður eftirfylgni auðveldari og eykur öryggi bæði áhafnar og farþega.“ Hvað kostnað varðar áréttar Þórhildur að hér starfi allmargir sjómannalæknar, en til að starfa sem slíkur þurfi að uppfylla ákveðin skilyrði. Gjaldskrá þeirra tengist ekki Samgöngustofu. „Auðvitað kann að standa svolítið í fólki að þurfa að greiða þetta. En starfsleyfið er bundið við þetta og það kostar að viðhalda því.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Leiðangursskip flýja VSK-kerfið Dómsdagsspárnar stóðust ekki Vilja hluta kvótans út fyrir sviga Þorskstofn í Barentshafi veikist Andlát: Óli Hjálmar Ólason Einstök veðurblíða á miðunum Yfir 59 þúsund fermetrar í byggingu Strandveiðisjómenn brosa hringinn Verðhækkanir má rekja til El Niño Ný stafræn þjónusta í siglingum Dómsdagsspárnar stóðust ekki Þorskstofn í Barentshafi veikist Vilja hluta kvótans út fyrir sviga Andlát: Óli Hjálmar Ólason Einstök veðurblíða á miðunum Strandveiðisjómenn brosa hringinn Landvinnslan komin á fullt Ný stafræn þjónusta í siglingum Yfir 59 þúsund fermetrar í byggingu Segir eldið þurfa skýran ramma Andlát: Óli Hjálmar Ólason Brynjar nýr formaður stjórnar Írar hefðu líka viljað fá undanþágur frá ESB Vindorkugámar og sólarsellur um borð í Helgafelli Fimm fyrirtæki með þriðjung kvótans Vilja Strandvara til Noregs Dómsdagsspárnar stóðust ekki Andanefju rak á land Strandveiðisjómenn brosa hringinn Sjávarútvegsfyrirtæki lækka á markaði Fleira áhugavert Ríkið borgar brúsann Bankaskattar hér fimmfalt hærri Sýnarmálið áfall og djúp vonbrigði Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 2.9.26 764,12 kr/kg Þorskur, slægður 2.9.26 994,12 kr/kg Ýsa, óslægð 2.9.26 530,26 kr/kg Ýsa, slægð 2.9.26 587,60 kr/kg Ufsi, óslægður 2.9.26 389,70 kr/kg Ufsi, slægður 2.9.26 413,00 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 2.9.26 278,25 kr/kg Litli karfi 1.9.26 5,00 kr/kg Blálanga, óslægð 2.9.26 303,01 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 2.9.26 Sandfell SU 75 Lína Þorskur 2.968 kg Hlýri 312 kg Ýsa 254 kg Keila 241 kg Karfi 107 kg Ufsi 20 kg Samtals 3.902 kg 2.9.26 Björg EA 7 Botnvarpa Karfi 8.780 kg Samtals 8.780 kg 2.9.26 Magnús SH 205 Dragnót Þorskur 1.529 kg Ýsa 681 kg Skarkoli 624 kg Skrápflúra 620 kg Sandkoli 174 kg Steinbítur 81 kg Langlúra 39 kg Þykkvalúra 6 kg Karfi 4 kg Samtals 3.758 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Leiðangursskip flýja VSK-kerfið Dómsdagsspárnar stóðust ekki Vilja hluta kvótans út fyrir sviga Þorskstofn í Barentshafi veikist Andlát: Óli Hjálmar Ólason Einstök veðurblíða á miðunum Yfir 59 þúsund fermetrar í byggingu Strandveiðisjómenn brosa hringinn Verðhækkanir má rekja til El Niño Ný stafræn þjónusta í siglingum Dómsdagsspárnar stóðust ekki Þorskstofn í Barentshafi veikist Vilja hluta kvótans út fyrir sviga Andlát: Óli Hjálmar Ólason Einstök veðurblíða á miðunum Strandveiðisjómenn brosa hringinn Landvinnslan komin á fullt Ný stafræn þjónusta í siglingum Yfir 59 þúsund fermetrar í byggingu Segir eldið þurfa skýran ramma Andlát: Óli Hjálmar Ólason Brynjar nýr formaður stjórnar Írar hefðu líka viljað fá undanþágur frá ESB Vindorkugámar og sólarsellur um borð í Helgafelli Fimm fyrirtæki með þriðjung kvótans Vilja Strandvara til Noregs Dómsdagsspárnar stóðust ekki Andanefju rak á land Strandveiðisjómenn brosa hringinn Sjávarútvegsfyrirtæki lækka á markaði Fleira áhugavert Sýnarmálið áfall og djúp vonbrigði Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Olíuverð hækkar á versta tíma fyrir verðbólguna Gagnrýni Loga kom á óvart Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 2.9.26 764,12 kr/kg Þorskur, slægður 2.9.26 994,12 kr/kg Ýsa, óslægð 2.9.26 530,26 kr/kg Ýsa, slægð 2.9.26 587,60 kr/kg Ufsi, óslægður 2.9.26 389,70 kr/kg Ufsi, slægður 2.9.26 413,00 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 2.9.26 278,25 kr/kg Litli karfi 1.9.26 5,00 kr/kg Blálanga, óslægð 2.9.26 303,01 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 2.9.26 Sandfell SU 75 Lína Þorskur 2.968 kg Hlýri 312 kg Ýsa 254 kg Keila 241 kg Karfi 107 kg Ufsi 20 kg Samtals 3.902 kg 2.9.26 Björg EA 7 Botnvarpa Karfi 8.780 kg Samtals 8.780 kg 2.9.26 Magnús SH 205 Dragnót Þorskur 1.529 kg Ýsa 681 kg Skarkoli 624 kg Skrápflúra 620 kg Sandkoli 174 kg Steinbítur 81 kg Langlúra 39 kg Þykkvalúra 6 kg Karfi 4 kg Samtals 3.758 kg Skoða allar landanir »

Share this article