Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gera níu breytingar á lögum um kílómetragjaldið

Read Full Article →

Fjármálaráðuneytið hefur birt áformaskjal um fyrirhugaðar breytingar á lögum um kílómetragjald á ökutæki sem tóku gildi 1. janúar 2026. Áformað er að breytingarnar taki gildi um næstu áramót. „Með hliðsjón af fenginni reynslu af upptöku kílómetragjalds og framkvæmd laganna þykir tilefni til að leggja til breytingar á lögunum, einkum í því skyni að styrkja lagaumgjörðina og styðja þar með við framkvæmd gjaldtökunnar og innheimtu gjaldsins,“ segir í samráðsgátt stjórnvalda. Með lögunum var lögfest nýtt tekjuöflunarkerfi vegna notkunar ökutækja á vegakerfinu, þ.m.t. ökutækja sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Stjórnvöld segja upptöku kílómetragjalds hafa verið til þess fallna að skjóta styrkari stoðum undir tekjuöflun ríkisins til að standa undir viðhaldskostnað vegakerfisins og stuðla jafnframt að skilvirkara og sanngjarnara gjaldakerfi fyrir eigendur og umráðamenn ökutækja. Í áformaskjalinu er greint frá níu fyrirhuguðum breytingum til að styrkja lagaumgjörðina, styðja við framkvæmd gjaldtöku og innheimtu gjaldsins og afmarka nánar tilteknar undanþágur frá gjaldskyldu. Breytingarnar eru eftirfarandi: Að kveða á um undanþágu frá kílómetragjaldi fyrir tiltekin ökutæki sem ekki eru notuð á vegakerfinu, svo sem námuökutæki og beltabifreiðar sem eingöngu eru notuð utan vega eða á lokuðum vinnusvæðum og flugvallarökutæki sem eingöngu eru notuð á lokuðum svæðum flugvalla. Að kveða á um heimild ríkisskattstjóra til að lækka álagt kílómetragjald ef í ljós kemur að álagning hefur augljóslega byggst á röngum forsendum og álagt gjald er hærra en ætla mætti að rétt fjárhæð sé. Að kveða skýrt á um að kílómetragjald teljist til rekstrarkostnaðar samkvæmt tekjuskattslögum, nr. 90/2003. Að kveða með skýrari hætti á um undanþágu björgunarsveita frá kílómetragjaldi. Að breyta reglum um skráningu á stöðu akstursmælis þannig að gjaldskyldum aðilum verði heimilt að skrá nýja stöðu áður en 30 dagar eru liðnir frá síðustu skráningu. Að kveða skýrar á um undanþágu frá bráðabirgðagreiðslu kílómetragjalds vegna ökutækis sem var staðsett erlendis við gildistöku laganna 1. janúar 2026 og hefur áfram verið staðsett erlendis. Að breyta ákvæði laganna um aðalskoðun þannig að ógreitt kílómetragjald fyrri eiganda eða umráðamanns komi ekki í veg fyrir að aðalskoðun ökutækis fari fram. Að skýra nánar í 1. mgr. 26. gr. laganna að kílómetragjald, þ.m.t. daggjald og fast akstursgjald, sem innheimt er samkvæmt lögunum myndi ekki gjaldstofn til virðisaukaskatts. Að kveða á um skyldu faggiltra skoðunarstofa til að upplýsa Skattinn ef ökutæki er með akstursmæli sem mælir ekna vegalengd í mílum en ekki kílómetrum. Samhliða er áformað að skoða nánar eftirfarandi atriði: Hvort rétt sé að kveða á um undanþágu léttra bifhjóla frá kílómetragjaldi. Hvort rétt sé að samræma ákvæði laganna um gjalddaga og eindaga kílómetragjalds, eða eftir atvikum lengja frest til gjaldaga, þannig að ríkisskattstjóri hafi aukið svigrúm til að leiðrétta rangar skráningar áður en bráðabirgðagreiðsla er ákvörðuð eða álagning gjaldsins fer fram

Share this article