Í nýbirtu fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er lagt til að kílómetragjald á ökutæki hækki um 15,9%. Fjármálaráðuneytið segir þetta vera 5,2% hækkun í samræmi við forsendur fjárlagafrumvarpsins auk 4 milljarða króna tekjuauka til samræmis við markmið um að tekjur af ökutækjum og eldsneyti nemi 1,7% af vergri landsframleiðslu. „Frumvarpið gerir ráð fyrir að kílómetragjald hækki um 4 milljarða króna umfram verðlagsuppfærslu en undanfarin ár hafa stjórnvöld leitast við að styrkja tekjustofna af ökutækjum og gegnir kílómetragjaldið þar lykilhlutverki.“ Í frumvarpinu er áætlað að kílómetragjald skili ríkissjóði 43,4 milljörðum króna í tekjur á næsta ári, en til samanburðar er gert ráð fyrir að kílómetragjaldið skili ríkinu 36,7 milljörðum króna í ár. Um er að ræða hækkun upp á rúmlega 6,6 milljarða króna. Í frumvarpinu segir að gert sé ráð fyrir að krónutölugjöld hækki um 5,2%, til samræmis við verðbólgu í árslok 2026 í þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands sem liggur til grundvallar. Lög um kílómetragjald á ökutæki tóku gildi 1. janúar 2026. Stjórnvöld segja að með upptöku kílómetragjalds og afnámi bensín- og olíugjalda í ársbyrjun hafi verið tekið upp sanngjarnara kerfi þar sem greiðslur vegna aksturs eru tengdar notkun á vegakerfinu