Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins á Íslandi á sinn fund í morgun. Þar voru gerðar alvarlegar athugasemdir við framferði Rússlands. Þetta sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í hádegisfréttum Bylgjunnar. Hún segir samstöðu Íslands með Þýskalandi hafa verið áréttaða í ljósi drónaatviks í Leipzig í Þýskalandi í síðasta mánuði. Fulltrúi Rússa hafi tekið á móti skilaboðunum. Ísland haldi áfram að styðja við Úkraínu og mótmæli grimmilegum stríðsrekstri Rússlands. Er sendiráð Rússa enn starfandi á Íslandi? Já. Sendiráð Rússa er enn starfandi á Íslandi, en sendiherra Rússa á Íslandi yfirgaf Ísland og starfsmönnum þess var fækkað úr tuttugu í átta árið 2023. Þáverandi utanríkisráðherra Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir lagði niður sendiráð Íslands í Moskvu og gerði Rússum að lágmarka starfsemi sendiráðs síns hér á landi. Þorgerður sat fund utanríkisráðherra Evrópusambandsríkja á Írlandi í gær. Í samtali við fréttastofu eftir fundinn sagði hún tilraun Rússa vera hryðjuverk. „Það var nefnt á fundinum að það á bara að kalla þessar ógnir því sem þær heita, sem er bara hryðjuverk.“ Þýsk stjórnvöld sökuðu Rússa á þriðjudaginn um að hafa flogið dróna með sprengiefni inn á flugvöll í Leipzig. Rússlandsforseti segir þýsk stjórnvöld hafa komið fyrir sönnunargögnum til að saka Rússa um árásina.