Innlent | mbl | 3.9.2026 | 13:36 Kölluðu Rússa á teppið vegna drónaárásar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Fulltrúi rússneska sendiráðsins í Reykjavík var kallaður á fund í utanríkisráðuneytinu í dag vegna tilraunar til drónaárásar á Leipzig/Halle-flugvöll í Þýskalandi í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þar segir að Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, hafi boðað fulltrúann á sinn fund þar sem samstaða íslenskra stjórnvalda með Þýskalandi var áréttuð. Þýsk stjórnvöld hafa formlega kennt Rússlandi um árásartilraunina sem átti sér stað 4. ágúst. Gerðu alvarlegar athugasemdir „Við gerðum alvarlegar athugasemdir við framferði Rússlands og þær fjölþáttaðgerðir sem stjórnvöld í Moskvu beita til að grafa undan öryggi Evrópu og hafa áhrif á stuðning Þýskalands og annarra bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins við varnarbaráttu Úkraínu,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í tilkynningunni. Þýsk stjórnvöld brugðust einnig við niðurstöðu rannsóknarinnar með því að kalla rússneska sendiherrann í Berlín á fund. Jafnframt hafa þau boðað ýmsar aðgerðir gegn Rússlandi. Á fundinum í íslenska utanríkisráðuneytinu var einnig komið á framfæri fordæmingu íslenskra stjórnvalda á stríðsrekstri Rússlands í Úkraínu. „Við gerðum fulltrúa rússneska sendiráðsins kyrfilega grein fyrir því að stuðningur Íslands við Úkraínu sé staðfastur og verði það áfram,“ segir Þorgerður Katrín. Dróni með sprengiefni Vísað er til atviks þar sem dróni með sprengiefni og kveikibúnaði fannst á öryggissvæði flugvallarins, skammt frá úkraínskum Antonov-flutningavélum. Sprengingin varð ekki og tókst sprengjusérfræðingum að tryggja drónann. Rannsókn málsins bendir til þess að fleiri drónar hafi komið við sögu. Annar dróni, sem einnig virðist hafa borið sprengiefni, fannst á akri skammt frá flugvellinum tíu dögum síðar. Þýsk öryggisyfirvöld segja sprengiefnið, kveikibúnaðinn og aðra tækni sem fannst tengjast aðferðum sem þekktar séu úr fyrri fjölþáttaaðgerðum Rússa. Upplýsingar leyniþjónustu bendi jafnframt til þess að einstaklingar sem komu að aðgerðinni hafi starfað fyrir rússnesk stjórnvöld. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óvirk umferðarljós valda töfum: Ökumenn sýni aðgát Bretar kalla Rússa á sinn fund vegna drónaárásar Hafnaði Arsenal og Barcelona Beint heim að skrifa þá næstu „Vandamálið er hið opinbera“ Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leita að vitnum eftir meiriháttar skemmdarverk Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Sýnarmálið áfall og djúp vonbrigði „Ég held auðvitað í vonina“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Eins og blaut tuska Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Mjóu dósirnar kláruðust „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Heildartekjur að meðaltali 875 þúsund Leita að vitnum eftir meiriháttar skemmdarverk Bankaskattar hér fimmfalt hærri Einn af hverjum sex fólksbílum frá Kína Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar Nýjast á mbl.is » Óvirk umferðarljós valda töfum: Ökumenn sýni aðgát Bretar kalla Rússa á sinn fund vegna drónaárásar Hafnaði Arsenal og Barcelona Beint heim að skrifa þá næstu „Vandamálið er hið opinbera“ Umræðan Vakna þú, þyrnirós! Nú er verk að vinna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Danir vara við áformum Rússa „Ég held auðvitað í vonina“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Álíka margir farþegar í Keflavík og 2023 Mest lesið Í gær Í vikunni „Hún varð ástfangin af landinu ykkar“ Eins og blaut tuska Milljónir fyrir námsgögnum „finnast hvergi“ Mjóu dósirnar kláruðust „Það var grátið, það var brosað, það var beðið“ Nýtt hverfi í Garðabæ í mótun Heildartekjur að meðaltali 875 þúsund Leita að vitnum eftir meiriháttar skemmdarverk Bankaskattar hér fimmfalt hærri Einn af hverjum sex fólksbílum frá Kína Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Höfða skaðabótamál gegn Heiðari Guðjónssyni 100 sagt upp í tveimur hópuppsögnum „Ég er ekki hræddur maður en ég á fjölskyldu“ Ráðherra vill taka „smátíma“ „Við höfum verið steinsofandi á verðinum“ Ómögulegt að bóka tíma þótt möguleikinn sé í boði Handtekinn í tengslum við brunann á Laugavegi „Það var kominn minkur inn“ Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Sagt upp eftir rúm 20 ár hjá Sýn Mannskæðustu bílslys aldarinnar