TT3 hf., móðurfélag Ormsson og raftækjaheildverslunarinnar SRX, tapaði 246 milljónum króna árið 2025, samanborið við 83 milljóna króna tap árið áður. Eftir lok reikningsársins veitti viðskiptabanki félagsins undanþágu frá skilyrði um eiginfjárhlutfall samkvæmt lánasamningum vegna ársins 2025. Í árslok 2025 var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 2,8% en eigið fé nam 74 milljónum króna og skuldir 2,5 milljörðum króna. Í nýbirtum ársreikningi kemur fram að stjórn TT3 hafi tekið ákvörðun um að sameina rekstur SRX hf. við systurfélagið Ormsson hf. frá og með árinu 2026, sem þátt í því að auka aðhald og draga úr kostnaði innan samstæðunnar. Endurskoðandinn gerir fyrirvara Eignir samstæðu TT3 námu 2.617 milljónum króna í árslok 2025. Þar af var viðskiptavild upp á 387 milljónir og skuldabréfaeign á tengda aðila að fjárhæð 262 milljónir króna. Um er að ræða kröfu í tengslum við sölu SRX á 12% hlut í tryggingatæknifyrirtækinu Verna hf. árið 2023 til tengds aðila og var kaupverðið greitt með skuldaviðurkenningu. Krafan er tryggð með handveði í hlutabréfum í Verna hf. og er samningsbundinn gjalddagi hennar 23. desember 2026. „Stjórn gerir ekki ráð fyrir að krafan verði greidd á þeim gjalddaga og telur líklegt að gjalddagi hennar verði framlengdur […] Veruleg óvissa ríkir um innheimtanleika kröfunnar. Krafan hefur ekki verið færð niður í ársreikningnum og kann endanlegt innheimtuvirði hennar að ráðast að verulegu leyti af verðmæti hinna veðsettu hlutabréfa,“ segir í ársreikningi TT3. Í áritun óháðs endurskoðanda er gerður fyrirvari við álitið í ljósi þess að félagið færði ekki niður virði kröfunnar. „Að okkar mati benda fyrirliggjandi upplýsingar til þess að veruleg óvissa sé um innheimtanleika kröfunnar og að virði handveðsins í hlutabréfum Verna hf. sé verulega lægra en bókfærð fjárhæð kröfunnar. Við teljum því að færa hefði átt niður kröfuna, að minnsta kosti að hluta. Slík niðurfærsla hefur ekki verið færð í ársreikningnum. Af þeim sökum eru eignir og eigið fé félagsins of hátt metin og afkoma ársins of hátt sýnd að því marki sem niðurfærsla hefði átt að nema,“ segir í áritun Advant endurskoðunar ehf. Keyptu Ormsson fyrir 5 árum TT3 var stofnað í kringum kaup raftækjaheildverslunarinnar SRX á Ormsson árið 2021. Félagið er í 62,7% eigu SORM ehf., félag Kristínar Sigríðar Gunnarsdóttir, 32,3% eigu Verslanagreiningar ehf., félags Kjartans Arnar Sigurðssonar, og 5% eigu GGIGG ehf., félags Finns Árnasonar. Á síðasta ári keypti SORM ehf. við 62,7% eignarhlut XOR ehf., félags Ingva Týs Tómassonar, í TT3. Kristín og Ingvi Týr eru hjón. Samstæða TT3 velti 5,5 milljörðum króna, sem samsvarar 4,8% samdrætti frá fyrra ári. EBITDA-afkoma samstæðunnar dróst saman úr 310 milljónum í 105 milljónir milli ára. Félagið skilaði 68 milljóna króna EBIT-tapi og hrein fjármagnsgjöld námu 289 milljónum króna. Sem fyrr segir var tap eftir skatta 246 milljónir. Ársverk voru 57 í fyrra. Velta dótturfélagsins Ormsson hf. nam 4.636 milljónum króna og dróst saman um 1,3% milli ára. EBITDA-afkoma raftækjaverslunarinnar nam 96 milljónum króna, samanborið við 253 milljónum árið áður. Ormsson tapaði 67,3 milljónum eftir skatta, samanborið við 110 milljóna hagnað árið áður. Framkvæmdastjórinn hætti í vor Kjartan Örn Sigurðsson tilkynnti í apríl 2026 að hann hefði látið af störfum sem framkvæmdastjóri Ormsson. Kjartan, sem er einn þriggja eigenda TT3, hafði stýrt félaginu frá árinu 2021 í kjölfar yfirtökunnar á Ormsson. Kjartan sagði í færslu á Linkedin að hann hafi látið af störfum eftir að hafa leitt endurskoðun á rekstri Ormsson sem hafi glímt við krefjandi rekstrarumhverfi á tímum hárrar verðbólgu og hás vaxtastigs sem hafi haft neikvæð áhrif á eftirspurn. Kjartan ræddi um aðdraganda kaupanna á Ormsson í viðtali við Viðskiptablaðið í ágúst 2021. Sjá einnig Verður ein stærsta raftækjasala landsins Sigrún L. Sigurjónsdóttir, fjármálastjóri Ormsson, er í dag skráður framkvæmdastjóri raftækjaverslunarinnar, samkvæmt Creditinfo.