Heimildamyndin Jörðin undir fótum okkar, í leikstjórn Yrsu Roca Fannberg, hefur verið valin sem framlag landsins til Óskarsverðlaunanna 2027. Myndin gerist á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík og fjallar um síðasta skeið lífsins. Yrsa hefur sjálf starfað þar um árabil og myndað náin tengsl við heimilisfólkið, sem hún fylgir í myndinni. Þar er brugðið upp mynd af daglegu lífi á Grund þar sem minningar og samtöl heimilisfólksins fléttast saman. Valið var í höndum dómnefndar Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Í umsögn hennar er Jörðinni undir fótum okkar lýst sem persónulegu og áhrifaríku verki og þar er sérstaklega fjallað um nálgun Yrsu, sem dómnefndin segir einkennast af nærgætni og skilningi. Dómnefndin segir jafnframt að myndin gefi áhorfendum svigrúm til að kynnast fólkinu sem þar kemur fram, tengjast persónunum og draga sínar eigin ályktanir. Myndin var frumsýnd á RIFF-kvikmyndahátíðinni í október á síðasta ári og hlaut síðar Edduna sem heimildamynd ársins. Alþjóðleg frumsýning hennar fór fram á CPH:DOX í Kaupmannahöfn og hefur hún síðan verið sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim og hlotið þar fjölda verðlauna og viðurkenninga. Stuttlisti fyrir Óskarsverðlaunin verður kynntur 15. desember en tilnefningarnar 21. janúar 2027.