Heimildarmyndin Jörðin undir fótum okkar verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2027. Í myndinni, sem er í leikstjórn Yrsu Roca Fannberg, er sjónum beint að lífinu á hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut í Reykjavík. Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían valdi myndina úr flokki gjaldgengra mynda. Í dómnefndinni sátu fulltrúar helstu fagfélaga íslensks kvikmyndagerðarfólks, fulltrúar kvikmyndahúsa, kvikmyndagagnrýnenda og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Í myndinni er fjallað um hversdagslífið á Grund og fólkið sem þar býr. „Þessi augnablik virka sérstaklega náttúruleg og einstök, eins og þau hafi verið fönguð fyrir algjöra tilviljun,“ sagði Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar á Rás 1, þegar hann fjallaði um myndina í október 2025.